Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1929, Síða 59
49
dís Halldórsdóttir, var ættuíS úr Þistilfiröi. Þórarinn
kom aíS heiman með foreldrum sínum og systkinum áriÖ
1881, fluttust þau þegar til N. Da'kota og námu land eigi
all-langt frá Mountain. Þar bjuggu þau 8 ár. ÞaSan
fluttust þau til Alberta og voru þar eitt ár, þá til Victoria,
B. C. og voru þar nokkur ár. ÁriÖ 1890 fluttist fjöl-
skyldan til Seattle. Þegar hér var komið mun Þórarinn
hafa verið orðinn fyrirvinna fólks síns. I Seattle kvong-
aðist hann og fluttist skömmu síðar til Bellingham, var
þá móðir hans látin, en faðir hans fór með honum til
Bellingham, og þaðan til Blaine 1902 Þar lézt Gísli fjör-
gamall, árið 1917. Gísli var um marga hluti merkur
maður fram yfir það sem alment gjörist. Hann var lög-
fróðari maður exr flestir leikmenn og naut þess við með-
an hann var heima, sér og öðrum til gagns. Þess utan
fekst hann við smáskamta-lækningar og hepnaðist vel.
Las og skrifaöi enska tungu sæmilega, þrátt fyrir það að
hann var við aldur, þegar hann kom hingað til lands, og
þarfir heimilisins gáfu honum lítinn tima til lærdóms. —
Kona Þórarins er Júlíana Hallgrímsdóttir, Péturssonar
frá Hákonarstööum á Jökuldal, af hinni alkunnu Hákon-
arstaða-ætt. Móðir Júlíönu var Þorgerður Jónsdóttir
ættuð úr Eyjafirði. Júlíana er fædd 1860 að Fremraseli
í Hróarstnngu. Ólst upp að mestu hjá frænda sínum
séra Þorkeli Sigurðssyni í Þingmúla. Fluttist frá íslandi
með fyrra manni sínum, Þorkeli smið Sigurðssyni frá
Geirastöðum í Hróarstungu árið 1879. Þau hjón voru 9
ár í Dulúth, Minn. Nokkra mánuði í Fort William og
Branton, Ont., rúmt ár í St. Helena, Mont., þaðan flutt-
ust þau til Seattle. Þar misti Júlíana mann sinn frá 10
börnum. Af þessum hóp lifa nú aðeins þrjú börn. Þau
eru Karl Vilhjálmur, Oliver Sívert og Ingibjörg, öll gift.
í Seattle mætti hún Þórarni og giftist honum. — Frá
Seattle fluttust þau hjón til Bellingham og síðan til Blaine
og hafa ibúið þar síðan. Júlíana hefir verið með fríðustu