Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1929, Qupperneq 65
hans bjó áfram aÖ Grund, eftir lát manns síns, og var
Gísli hjá henni þau árin, aÖ mestu. ÁriÖ 1890 fluttu þau
mæðgin vestur um haf til Ameríku og námu þegar land í
Garðar-bygð i N. Dak. og bjuggu þar nokkur ár. Þar
heima kvæntist GísH Ingibjörgu Steinunni Einarsdóttur,
þá ekkju og bjuggu þau þar áfram næsta ár. Árið 1902
fluttu þau vestur á strönd, voru eitthvað í Ballard, en
fóru þaðan til Blaine. Þar voru þau 7 ár, á landi (40
ekrum), sem þau keyptu kringum 5 mílur frá bænum.
Þetta land seldu þau og dvöldu næstu tvö árin í bænurn,
en fluttu ])á til Vancouver, B.C., og voru þar 6 ár, þaðan
fóru þau til Iiunter-eyjunnar, þaðan til Ocean Falls og nú
eru þau komin til Blaine aftur og má ætla að hér endi
leiðin. Hafá þau nú keypt sér heimili að nýju í Blaine.—
Gísli hefir verið dugnaðarmaður hinn mesti. Fáskiftinn
um flesta hluti, en talinn drengur góður af þeim, er hann
þekkja. — Ekki hefir þeirn hjónum orðið erfingja auðið,
en pilt ólu þau upp, Einar Ingvar, son Þórðar Hagaards
og Jóninu Pálsdóttur. Þenna pilt tóku þau nýfæddan og
gengu honum í foreldra stað. Hann var hið efnilegasta
ungmenni og mun hafa haft miðskólamentun er hann
lézt 25 ára gamall. Varð ásamt fjórurn öðrum mönnum
fyrir skriðuhlaupi í Alcum Bay, norður með ströndum
Canada, þar sem hann var umsjónarmaður við tirnbur-
töku fyrir pappirsgjörðarfélag í O'cean Falls, B.C. —
Ingihjörg kona Gisla er fædd 1860 að Fremri Gufudal i
Gufudalssv. i Barðastr.s. Foreldrar hennar voru hjónin
Einar Magnússon Einarssonar frá Skálevjum á Breiða-
firði og Ingibjörg Jónsdóttir Bjarnasonar frá Egildar-
holti í S'kagafirði. Er Einars og sona hans' getið í Al-
manakinu 1913, bls. 36-37, og vísum vér þangað um ætt-
erni Ingibjargar. Ingibjörg misti ung móður sína, og var
ekki nema fárra ára, 5 eða svo, er faðir hennar brá búi
og kom henni fyrir hjá bónda þeim, er þá tók viS jörð-
inni. Elclci var hún þar lengi. Þeir Einar faðir Ingi-