Fróði - 01.01.1914, Page 42

Fróði - 01.01.1914, Page 42
106 FRÓDI faeða “vegetárian diet” og veitir manninum meiri næringu, hraustleika, vöðvaafl og úthald, heldur en kjötfæðan og er stór- um hollari og betri fyrir námsmanninn og þá sem með heilanum vinna, fyrir aflraunamanninn og verkamanninn, eins og reynst hefir þegar tilraunir hafa gjörðar verið til að komast að því, hver fæðan gæfi manninum meira úthald og þrek. Sem dæmi þess má taka kappgönguna í Dresden ekki fyrir löngu. Þar unnu jurtafæðumenn (vegetarians) fáheyrðan sigur. Leiðin var 30 kílómetrar og 286 menn þreyttu kappgönguna. Af þeim voru 200 hermenn. Hver manna þessara þurfti að bera 62 pund af vistaforða. 1 6 manna þessara voru jurtafæðu- menn. Og fyrstur í göngunni varð jurtafæðumaður, og svo annar, þrðji, fjórði, ellefti, fjórtándi og nítjándi. Annað dæmi er af mönnum tveimur ungum, Jesse H. og Warren Buffman, sem gengu frá Boston til Los Angeles yfir þvera Ameríku nú nýlega. Þeir lögðu á stað frá Boston 8. Júní, 1911, en komu til Los Angeles hinn 1 7. desember sama ár. Þetta voru bræður tveir og var gangan einmitt gjörð til þess að reyna hver fæðan reyndist betur, kjötið eða kornið. Þeta voru stúd- entar af Harvard háskóla og stýrði göngunni Dr. Sargent, efna- fræðingur við háskólann. Bræðurnir voru hér um bil jafnþungir, er þeir lögðu frá Boston. Warren lifði eingöngu á kornmat og ávöxtum, smakk- aði ekki annað. En, þegar þeir komu til Los Angeles, var jurta- fæðumaðurinn 8 pundum þyngri, en þegar hann lagði á stað. Hinn, sem kjötið át, hafði lítið sem ekkert þyngst, og var allur ver á sig kominn. Kom þeim báðum saman um það, að jurta- fæðan tæki kjötinu mikið fram. En þó að menn hafi dæmi þessu lík í hundraðatali og geti ekki hrakið það, að kornfæðan er billegri, styrkir betur sálar- hæfileika og siðgæði mannsins, þá er alþýða manna stæk á móti þessu, hún þekkir ekki efnafræðina eða lögmál hennar, og þetta er orðið kynfast, að halda áfram að myrða og síðan eta dauða skrokkana af kúnum, kindunum, svínunum og friðsömum kálf- um og leikfullum lömbum. Menn þurfa ekki að hugsa til þess, að stríðum og hörmung- um þeirra linni meðal þjóðanna, meðan menn leggjast á hin sak-

x

Fróði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.