Fróði - 01.01.1914, Page 44

Fróði - 01.01.1914, Page 44
108 FRÓDI Smásálirnar. Ég býst vð, að sumum þyki það æði undarlegt, eða kanske vitlítið, að ég skuli fara að tala um þetta efni, sem hinir og þessir ætla, a búið sé að kveða niður, rétt eins og þegar kraftaskáldin kváðu niður vofurnar og sendingarnar á fyrri dögum.söktu þeim niður í jörðina og stigu svo á blettinn þar sem þær sukku, eða gjörðu merki yfir svo þeir gætu ekki komið upp þar aftur. En mér hefur nú verið svo varið, að ég hef held ég hugsað um þetta efni meira og minna síðan ég fyrst man eftir mér, og ég hef verið forvitinn um alt, sem að því hefur lotið, og lesið úm það greinar og hugvekjur og heimspekis kerfi, eftir marga höfunda. Og það sem ég hef lesið er, eins og gengur, sumt gott og fróðlegt, en sumt getgátur og vitleysur. Sumir hafa neitað því, að nokkur sál væri til og enn eru aðrir sem segja að enginn líkami sé til, en aftur hafa aðrir verið svo vissir um það, að þeir hafa ekki viljað hafa neina rannsókn í þeim efnum, hafa talið það hneiksli eitt. Þeir hafa tekið það trúanlegt, er einhver sagði þeim, að maðurinn hefði sál án þess að sanna þeim það með nokkru. Að efast um það.sem þessi og þessi mikli maðurinn hefði sagt, væri goðgá ein alveg eins, þó að maður skildi ekkert í því. Þetta getur nú verið gott og blessað fyrir þá, sem láta sér þetta nægja. En ég er nú svo gallaður, að mér gat ekk nægt þetta. Ég vildi verða sannfærður um annaðhvort, og svo hef ég verið að leita og brjóta heilann ár eftir ár, og voru þá oft ýmsir endar uppi. Orðið og hugmyndin sál innibindur skynjan og hugsun og viljakraft og starf. En þetta getur verið á ákaflega mismunandi stígi. Ég skal taka til dæmis einhvern frægasta manninn, sem hefur neitað því, að maðurinn hefði sál, og að nokkurt annað líf væri til, það er hinn þýski vísindamaður Haeckel. En hann við- urkennir samt sál, cellusálina. Það er hún sem byggir upp og viðheldur öllu hinu lifanda, grösunum, jurtunum, trjánum, dýr- unum, manninum. Það eru hinar örsmáu cellur, sem í millíóna

x

Fróði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.