Fróði - 01.01.1914, Qupperneq 50
114
FRÓDI
eSa 300000 á þumlinginn þá förum vér aS hafa litla hugmynd um
þá mergð. Og því minna þegar þær koma 1 0 milíónirnar. En þa<S
er þaS nú. Til þess aS þekja flöt, einn ferhyrningsþumlung á
stærS, þarf 10 milíónir af þessum smáu verum. þær æxlast
þannig aS þær klofna í tvent.—Mönnum kann nú kanske aS
þykja þaS hálfómerkilegt, aS hlutir klofni í tvent, þeir hafa séS
þaS svo oft um dagana. En þessi skifting eSa klofnun, sem hér
á viS er einhver sú hin dásamlegasta og dularfylsta í öllu ríki
náttúrunnar, og þó fer hún daglega fram í grösunum, blómunum,
dýrunum, og í oss sjálfum. Ef aS þú tekur eina af þessum ör-
smáu cellum undir góSan sjónauka, þá geturSu séS hvernig alt
þetta gengur til.
Vér sjáum þá fyrst celluna sem ofurlitla bólu, eSur hnikil og
er einhver kjarni í henni miSri. Þessi kjarni er nokkurskonar net
eSa flétta og eru þaS V myndaSir þræSir eSa stangir. Þeir eru
kallaSir chromosomes og mynda hring í miSri cellunni. Vana-
lega eru þær 16, í sumum tegundum 4, 8, 12, 16, 24. Utan viS
þennan hring, og fráskilin frá honum, er ofurlítill depill eSa
hnoSri. Og þegar aS því kemur, aS cellan fæSi af sér aSra, þá
klofnar fyrst þessi litli hnoSri í tvent, svo færist hver helmingur-
inn lengra og lengra frá öSrum. En frá hverjum þessum klofn-
ingi renna örfínir þræSir inn til V mynduSu stanganna í kjarn-
anum og eru þræSirnir jafnmargir og vöffin eru í þessum chromo-
somes. Depill þessi hinn smái eSur hnoSri, sem fyrst klofnar, er
kallaSur centrosome. Eftir því, sem hnoSrar þessir færast leng-
ra hver frá öSrum, herSir á þráSunum eSa strengjunum. Loks
eru þeir komnir andspænis hver öSrum, og þá klofna allar V
mynduSu stengurnar í tvent, svo aS hver helmingur hefur sína
16 chromosomes, sem móSurcellan, og einnig sinn eiginn cen-
trosome. Um leiS og þetta gjörist reyrist cellan saman í miSju
einlægt meira og meira, þangaS til hún alveg slitnar sundur og
eru þar komnar tvær cellur í staS einnar. Þetta er vöxtur allra
grasa, trjáa, dýra, og manna. Alt þetta vex af hinni fyrstu frjóvg-
uSu móSurcellu. Og þaS er þessi litli hnoSri utan viS kjarnann,
centrosome” sem byrjar og ræSur þessari klofnun, sem er svo
samviskusamlega nákvæm. Hver ein af þessum nýju cellum
hefur akkúrat helminginn af hverjum hluta móSurcellunnar, svo