Fróði - 01.01.1914, Page 68
132
FRÓDI
John Thorsteinsson.
Reiðhjólasali og smiður, gjörir vicS og endurbætir reiShjól og
mótorhjól og margt annað.
Vér þekkjum hann flestir, hann Jón okkar, brosandi, leik-
andi, hlæjandi og spaugandi. Hann er búinn að vera hér lengi,
var hér fyrst þegar FróSi man eftir.
Jón er tæpur meðalmaíSur á vöxt, fjörugur og glaðlyndur.
Hann hefur rutt sér brautina brosandi og kátur frá engu. En er
nú í góðum efnum, og hefur með lipurð og framkomu sinni aflað
sér vina, og velvildar allra þeirra, sem þekkja hann. Fróði óskar
honum langra lífsdaga og að lífsgleðin og brosin og spaugið yfir-
gefi hann aldrei, meðan hann getur höfði haldið, og svo munu
fleiri til hans hugsa.