Kirkjuritið - 01.04.1944, Síða 7

Kirkjuritið - 01.04.1944, Síða 7
KirkjuritiS. Engillinn við gröfina. 125 19. aldir eru liðnar síðan konurnar þrjár þáru boð- skap upprisunnar út í heiminn, páskamorguninn, gleði- boðskapiun mikla, sem enn í dag vermir sorgbitin björtu, og gefur eilífðarvonunum nýjan þrótt og öfluga vængi. Og ég hygg, að sá boðskapur sé sterkari og þróttmeiri nú en nokkru sinni áður og um leið innilegri og dýpri, vegna þess að þekking vor á lögmálum lífs og hels er sífellt að aukast og skýrast með hverju ári sem líður. Lærisveinar Jesú og hinir fyrstu kristnu söfnuðir þekktu ekki þau lögmál. Þessvegna varð upprisuboð- skapur páskanna þeim fyrst og fremst hið inikla og dá- samlega undur, hið stórfellda tálcn um guðlegan mátt Krists, er með upprisunni liefði sigrað dauðann og brotið vald lians algjörlega á bak aftur. Þegar lærisveinarnir sáu Jesús upprisinn, þreifuðu á honum og skoðuðu naglaförin á höndum hans og fótum, þá litu þeir svo á, að líkami hans lie-fði beinlínis lifnað aftur, líkamsdauð- inn væri gjörsigraður, væri ekki framar til, og að þeir sjálfir myndu ekki þurfa að smakka dauðann, heldur bfa með Kristi eilíflega, jafnvel liér á jörðu. En þessi trú varð brátt að þoka fyrir hinum kröftugu andmælum reynslunnar. Hún iivarf ekki. Ilún þokaði aðeins um set. Hún lcom fram á ný sem kenning kirkj- unnar um upprisu líkamans á efsta degi. Og því verður ekki neitað, að sú kenning er nú farin að skyggja á binn raunverulega boðskap páskanna, og draga úr þeirri huggun og þeim fögnuði, sem bann réttilega skilinn hefir að færa. Það er varla við þvi að búast, að sá mað- ur mæti páskaenglinum við gröfina, sem gengur út að leiði ástvinar síns, og á enga æðri von eða vissu í hjart- anu en trúna á upprisu hoidsins á efsta degi með út- skúfunarkenningurini í baksýn. Boðskapur páskaengilsins er þessi: Drottinn lifir! Með því að birtast eftir dauðann befir hann sýnt, að líkams- dauðinn er ekki hinzti áfanginn á þroskabrautinni, neldur hið æðra og fullkomnara líf. Og ástvinur þinn,

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.