Kirkjuritið - 01.04.1944, Page 54
172 P. I.: Ávarp við fermingu. Apríl-Maí
Það er voldugur þáttur í lífi mannsins bænalífið.
Það er oft á tíðum hinn huldi kraftur, sem stjórnar öllu
starfi mannsins, því að þangað sækir hann þrek sitt á
reynslustundunum, í hinurn ýmsu erfiðleikum, er ávallt
henda livern og einn.
En hinu skuluni vér lieldur ekki greyma, að þakka
Guði fyrir ailt það gott, sem fram við yður kemur, því að
sá, sem ekki á þakldátt trúarlíf þegar velgengnin mætir
honum, hann kann eigi að meta allt það góða, sem Guð
gefur honum, og velgengnin getur jafnvel orðið honum
að falli.
Vér vonum því öll af alliuga, að þér, ungu systkin
vor, veljið veginn til lífsins, æfistarf yðar auðgi sálarlíf
yðar, gefi yður gæfu og gengi á ókomnum árum. Trú-
in á drottin vorn Jesú Krist verði yður vegarvísir í
lífinu allt til æfiloka, svo að foreldrar yðar geti ávallt
glaðst yfir yður sem góðum og nýtum þegnum mann-
félagsins.
Pétur Ingjaldsson.