Kirkjuritið - 01.04.1944, Page 20

Kirkjuritið - 01.04.1944, Page 20
138 Benjamín Kristjánsson: Apríl-Maí. stjórna öllu viturlega. Ég gerði stórvirki, reisli mér liús. Ég planlaði víngarða. Ég gerði mér jurtagarða og ald- ingarða og gróðursetti þar allskonar aldintré. Ég bjó mér til vatnstjarnir til að vökva með vaxandi viðarskóg. Ég keypti þræla og' ambáttir og átti beimafædd hjú. Ég átti meiri lijarðir nauta og sauða en allir þeir, sem ver- ið höfðu á undan mér í Jerúsalem. Ég' safnaði mér silfri og gulli og fjársjóðum og fékk mér söngmenn, og það sem er yndi karlmannana: fjölda kvenna. Ég varð mik- ill og meiri öllum þeim, sem verið böfðu á undan mér í Jerúsalem. Einnig speki mín var kyrr hjá mér. Og allt, sem augu mín girntust, það lét ég eftir þeim. Ég neitaði ekki bjarla mínu um neina gleði. En er ég leit á öll verk mín, þau er hendur minar höfðu unnið, og þá fyrirhöfn, er ég bafði haft fyrir að gera þau, þá sá ég, að allt var hégómi og eftirsókn eftir vindi 1— og enginn ávinningur til undir sólinni“. Þannig mælti þessi forni spekingur. Og' ekki ósvipuð tilfinning er það, sem einn af meiri háttar vitmönnum nútímans, heimspekingurinn Bertrand Bussel lýsir i einni af bókum sínum. Þar er tekið svo til orða: „Umhverfis lítið vogrek mannlegrar vináttu og fé- lagsskapar, sjáum vér kolsvart úthaf myrkursins. Þar hrekjumst vér á öldutoppunum skamma stund. Úr rílci næturinanr að utan skellur á oss stormur og alda, beljar svali, sem eykur mannsálinni ugg og ömurleik og ein- manatilfinning, því að hún verður að berjast ein, með því liugrekki sem hún á, gegn ofurvaldi og ofurþunga alheimsins, sem hvorki hirðir um vonir bennar eða ótta. Stutt og magnþrota er æfi mannsins. Yfir bana og alla lians ætt gengur dómur myrkurs og miskunnarleysis, hægt en óstöðvandi. Hin almáttuga rás efnisheimsins fer ósveigjanlega sínu frani, blind á greinararmun góðs og ills, og hirðulaus í eyðingu sinni. Því að maðurinn er í dag dæmdur til að missa þá, sem honum eru kær- astir, og hlýtur á morgun að ganga sjálfur að þeim

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.