Kirkjuritið - 01.04.1944, Side 26

Kirkjuritið - 01.04.1944, Side 26
144 Benjamín Kristjánsson: Apríl-Maí. unni eru nær. Guðir þessir kunan að hafa einhverjar glæsilegar Iiliðar, en þeir eru þó falsguðir og freistarar- af þvi að þeir þekktu aldrei Iiinn heilaga anda Drott- ins vors Jesú Krists. Þessir guðir eru persónugervingar vorra mannlegu breyskleika: hatuirsins, hefndarinnar, hrokans, eigin- girninnar, ofbeldisins, hörkunnar, vfirlætisins og mun- úðarinnar. Lögmál Krists var allt í andstöðu við þetta: Það var lögmál kærleikans og fyrrgefningar, hógværð- ar og mildi, góðvildar og sjálfsfórnar. Eigi ný trúarvakning að koma, getur hún aldrei orðið með öðru móti en þvi, að takast megi að opna skilning manna fyrir því, að Kristur benti á ágætari leið en allir þessir falsguðir fornaldar og nútíðar. Öll þessi skurðgoð hafa mennirnir tilbeðið sér til ófarnaðar úr forneskju. Kristindómurinn er í öndverðu fráhvarf frá þeim, eftir að mennirnir voru orðnir leiðir á þeim og höfðu skilið fánýti þeirra. Og enn geta leitandi hugir fundið i trúar- og siðahugsjón kristindómsins þann fögnuð og frið, sem þjónusta annara guða aldrei veitir. Vakningin getur því aldrei byggst á öðru en því, að hugsjónir Krists, per- sónuleiki og kenningar séu brendar inn i mannssálirn- ar, svo að þær standi þar óafmáanlega skýrt i fegurð sinni, og að byrjað sé þá nógu snemma að innræta þær. Tækifærið hefir ef til vill aldrei verið meira en nú að vekja skilninginn á því , að þetta er nauðsynlegt, ef menningin á ekki að líða undir lok á jörðinni. Sú óg- urlega blóðskírn, sem veröldin sldrist nú, sýnir oss eins og í skuggsjá, hvert sú vantrú og villutrú leiðii’, sem heimurinn hefir nú um sinn vei’ið drukkinn af. Enginn getur verið svo skyni skroppinn af þeim, sem utan við standa (ef nokkur stendur utan við) að gera sér þess ekki grein, að það eru Ragnarök heiðinnar og grimmra guða, sem nú ganga yfir veröldina. Getum vér þá ekki gert oss vonir um, að upp úr synda- flóðinu sjáum vér uppkomna öðru sinni jörð iðjagræna,

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.