Kirkjuritið - 01.04.1944, Page 45

Kirkjuritið - 01.04.1944, Page 45
Kirkjuritið. Óskir og afrek. 163 Ég þekkti þennan mann að vísu ekki mikið. Mér var lill kunnugt, livernig önnur störf hans voru af höndunl innt. En ég gat ekki hugsað mér, að þau væru illa unn- in, af því „að manninn skal kenna við verk sín“. Vinnuna má að vísu misnota eins og hverja aðra Guðs gjöf. Hún er stundum ok, þrældómur, fjötur um fót. Enginn er að öllu leyti sjálfum sér nógur, enda þótt hann hafi verkefni við sitt hæfi. Hann þarfnast sam- úðar, skilnings. Það eru margir, sem eru misskildir, og ])á eiga þeir erfiðara ineð að skilja aðra. Skilningsskort- urinn særir svo, að undan svíður. Eitt ónærgætið orð getur valdið meiri sársauka en þann liinn sama getur rennt grun í, er hann lætur það sér um rnunn fara i hugsunarleysi. Samúð og skilningur verrnir og vekur bros. Það er sál manrisins því líkt sem vorskúr gróandi jörð. Ef skilninginn vantar og samúðin er ekki til, er ntað- urinn einn og yfirgefinn. Þá er hann útlagi. Þannig hef- ir æfi sumra afburðamanna orðið öll önnur en vonir stóðu til. Allir þekkja sögu Grettis. Hann varð ógæfu- maður vegna þess, að hann skorti samúð, skorti samúð með smælingjunum, sem voru undir hans vernd, þegar bann var ungur. Þessvegna kvaldi hann þá. Þangað uiátti að miklu leyti rekja orsök hinnar miklu ógæfu hans. En þrátt fyrir það var hann gæfumaður á viss- an hátt. Hann álli að vísu fáa vini. Og hann vann mörg ó- happaverk. En eitt var það, sem aldrei brást honunt: Móðurástin. Ilún vakti yfir honum, hað fyrir honum og grét örlög hans. Hennar minning mun lifa margfalll lengur en afrek lians. Ilenni liefir verið kveðið lof- kvæði, og' þar er Ásdis á Bjargi ímynd móðurelskunnar, sem er reiðubúin að fórna öllu fyrir barnið sitt. Það var hamingja hans að njóta liennar svo lengi sem raun varð á. Og þó var óhamingja hans þyngri en tárum taki. Auð-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.