Kirkjuritið - 01.04.1944, Side 46

Kirkjuritið - 01.04.1944, Side 46
164 Þorgnýr Guðinundsson: Apríl-Maí. vitað var það þungbærl að vera útskúfaður úr mann- félaginu og eiga hvergi athvarf. En það voru samt smá- munir i samanburði við það að vera valdur að von- hrigðum og harmi hennar, sem svo miklar vonir liafði gert sér um hinn mannvænlega svein. Grettir var afreksmaður. Þessvegna liefir saga lians verið skráð. En sú saga hefði aldrei orðið ódauðleg án Ásdísar á Bjargi. - — Mörgum manni finnst hlutskipti sitt illl og óhærilegt, verra en allra annara. Einhvers staðar hefir verið skráð saga af súlku, sem aldrei var ánægð. Hún getur vel verið skáldsaga eða dæmisaga. En hún er þann- ig úr garði gerð, að hún hefir þótt þess verð að geym- ast, en ekki að gleymast. Þessi stúlka var svo óyndis- gjörn, að svo mátti segja, að liún lili aldrei glaðan dag. Raulaði hún oft þessa hendingu fyrir munni sér: - „Ég vildi, ég væri komin — hvurt, kannske eitthvað langt i burt, vantaði hvorki vott né þurrt, væri aldrei til mín spurt“. Sá, sem óskar sjálfum sér slíks hlutskiptis — að hverfa hurt af sjónarsviðinu, gleymast algerlega — hann er ekki verður þess að lifa lífinu. Hann er genginn úr leik og hefur gefizt upp á ömurlegan hátt. En ósigri má stundum snúa í sigur. Svo varð og hér. Eitt sinn, sem oftar, var stúlkan að raula fyrir munni sér sömu ljóðlínurnar. Þá þótti henni hún hverfa „eitt- hvað langt í hurt“. Þar kom hún í herbergi, þar sem hana „vantaði hvorki vott né þurrt“. Þar gat hún hvílt sig eftir vild og þurfti ekki annað en rétta höndina til þess, er hún þurfti sér til viðurværis. Þetta var undur þægilegt, og ekki jmrfti hún að bera áhyggjur fyrir komandi degi. Hún stóð ekki i neinni haráttu, þurfti ekki að stríða við neina erfiðleika vegna liins daglega brauðs. Og hún var komin langt frá öðrum mönnum, og þar var „aldrei lil hennar spurt“. — En þá lukust

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.