Kirkjuritið - 01.04.1944, Page 47

Kirkjuritið - 01.04.1944, Page 47
Kirkjuritið. Óskir og afrek. 165 augu hennar upp. Hún sá, að líf þetta var auvirðilegt og óþolandi. Og hún gerði bragarbót: „Ég vildi ég hefði verið um kjurt og væri aldrei horfin burt, vantað mig gæti votl og þurrt, ef væri nú aðeins til mín spurt“. Brá þá svo við, að hún hvarf aftur til síns fyrra heim- kynnis og undi nú hag sínum hið bezta. Hún hafði leit- að hamingjunnar langt yfir skammt, en þó höndlað hnossið að lokum. Hún hafði nú reynt það, að „Vort lán hýr í oss sjálfum, í vorum reit, ef vit er nóg“. Nú skildi liún loks sjálfa sig og sitl hlutverk. Norska skáldið Knud Hamsun hefur i einni af fræg- ustu sögum sínum lýzt lífi landnámsmannsins, frum- hyggjans. Hann hafði valið sér það verksvið að vinna að gróðri jarðar. Hann hafði valið rétt, það, sem var helzt við liæfi hans. Þar var hann allur og óskiptur. Undir æfikvöldið litur hann yfir farinn veg, sem reynd- ar er samfelld sigurbraut. Hann er ekki enn farinn að draga sig í hlé, þótt aldur færist óðum yfir hann. Hann vinnur, því að þegar starfsþrekið er þrotið og áhuga- eldurinn kulnaður, þá er lífinu reyndar lokið. Það er vor í loftinu og jörðin grær óðum. Hann er úti á akri, sem nú er fullbúinn undir sáningu. „Hvað vex þar? Allt nýtur þar vaxtar og þroska, menn, dýr, jurtir. Bóndinn sáir liinu góða sæði. Korn- in glóa eins og gull í kvöldsólinni, hrjóta víðsvegar úr hendi hans og leita sér staðar, hvert á sínum rétta stað. Innan skamms er akurinn algrænn yfir að líta. Fjöllin lialda vörð yfir sveitinni, og lilýr andvgrinn ber með sér angan gróandi jarðar. Kvöldsólin hnigur að viði, og húmið sígur að. Nóttin er i nánd, og hvíldin hennar verður mörgum kær“. Þessi hóndi er að vísu enginn spámaður. Hann er ekki frægur. Hann er ekki listamaður eða skáld, og hann

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.