Kirkjuritið - 01.09.1953, Side 29
PRESTASTEFNAN 1953
175
haga framkvæmdum í þessum málum, og mun væntanlega verða
gerð nánari grein fyrir því síðar á prestastefnunni. — Nú eru
í byggingu prestsseturshús á Reynivöllum, í Árnesi og Sauð-
^auksdal, og verður smíði þeirra væntanlega að mestu lokið
nú í sumar.
Samkvæmt skýrslum þeim um messugerðir og altarisgöngur,
sem ég mun síðar í dag leggja hér fram, voru guðsþjónustur í
þjóðkirkjunni árið 1952 samtals 4381, þar af voru barnaguðs-
Þjónustur 578. Er tala guðsþjónustna 220 hærri en síðastliðið ár.
Utvarpsmessur voru alls 86 og tala þeirra presta, sem þar
Prédikuðu, 27; þar af einn erlendur prestur. Altarisgestir í
þjóðkirkjunni árið 1952 voru alls 6717, og er það 90 fleiri en
n®sta ár á undan.
Hinn almenni bænadagur, sá þriðji í röðinni, var haldinn
sunnudaginn 10. maí. Er nú að skapast föst venja um það, að
þjóðin hafi sinn ákveðna og almenna bænadag hinn 5. sunnu-
dag eftir páska. Ég held að óhætt sé að fullyrða, að þjóðin sé
yfirleitt ánægð með upptöku bænadagsins, að kirkjusóknin
þennan dag sé yfirleitt mjög góð og þátttakan í deginum al-
menn. Þá er líka vel, og þá verður þessi dagur þjóðinni til
sannrar blessunar.
Á síðastliðnu sumri vísiteraði ég Strandaprófastsdæmi. Flutti
prédikun í öllum kirkjum í prófastsdæminu og auk þess er-
indi fyrir kirkjugesti, að lokinni guðsþjónustu. Kirkjusóknin
var yfirleitt mjög góð og áhugi fólksins vakandi fyrir öllu því,
er verða mætti til eflingar kirkju- og trúarlífs í söfnuðunum.
Vil ég nota tækifærið til þess að flytja prófasti og prestum,
soknarnefndum og söfnuðum innilegar þakkir fyrir ágætar við-
tökur og ánægjulegar samverustundir, og árna þeim heilla og
blessunar Guðs í nútíð og framtíð.
Samkvæmt skýrslu frá söngmálastjóra þjóðkirkjunnar, hafa
alla verið stofnaðir í landinu 165 kirkjukórar, þar af 9 á þessu
synodusári. Auk þess að annast kirkjusöng við guðsþjónustur,
hnfa kórarnir í ár eins og undanfarið haft sérstakar söng-
skemmtanir í héruðunum, og hafa 48 kórar tekið þátt í þeim
a synodusárinu. — Söngmót kirkjukórasambanda voru fjögur
a árinu: