Kirkjuritið - 01.05.1965, Qupperneq 14
252
KIRKJURITIÐ
Síra Sverrir Haraldsson, settur prestur að Desjarmýri, var
skipaður sóknarprestur þar 1. okt. 1964.
Síra Fjalar Sigurjónsson, sem var settur að Kálfafellsstað,
var skipaður sóknarprestur þar 1. ágúst 1964.
Síra Rögnvaldur Finnbogason var samkvæmt eigin ósk
leystur frá embætti sem sóknarprestur að Stafbolti 1. maí s. 1.
og frá sama tíma settur til þess að þjóna Hofi í Vopnafirði.
Við fráfall síra Gunnars Jóbannessonar var síra Sigurður
Pálsson, Selfossi, settur prófastur í Arnesþingi. Prófastskjör
liefur farið fram þar og í Eyjafjarðarprófastsdæmi og mun
veiting væntanleg næstu daga.
Nýir kandidatar
Þrír menn liafa lokið kandidatsprófi frá Guðfræðiileild Há-
skólans: Bragi Benediktsson, Sigfús Jón Árnason og Ágúst
Sigurðsson.
Vígfiar kirkjur
Þrjár kirkjur liafa verið vígðar, þar af tvær nýreistar, báðar á
fornum kirkjustöðum.
1. Mosfellskirkja í Mosfellssveit var vígð 4. apríl. Þar var
kirkja ofan tekin skömmu fvrir aldamótin síðustu og sóknin
sameinuð annari, Gufunessókn, og kirkja reist fyrir báðar að
Lágafelli. Bændur í Mosfellsdal liörmuðu mjög missi kirkju
sinnar og undu bonum illa en máttu eigi um breyta. Komust
þeir ekki lengra en að nema undan kirkjuklukku eina og ka-
leikinn og var livort tveggja geymt á bæjum í sveitinni og látið
bíða annars tíma. Þá gerðist það eitt baust að umkomulaus
drengur villtist inn í sveitina og heim að næsta bæ við Mosfell,
Hrísbrú, en þar var klukkan fólgin. Hann lilaut skjól á þeirn
bæ til frainbúðar, gerðist með aldri hinn merkasti maður og
efnaðist allvel. Þegar bann féll frá fyrir sex árum koin það í
1 jós, að liann hafði kveðið svo á í erfðaskrá, að mestum bbita
eigna bans skyldi varið til kirkjugjörðar að Mosfelli.
Nú er sú kirkja risin, vönduð og vegleg, óbrotgjarn varði
góðs drengs, Stefáns Þorlákssonar, og saga bennar meðal liinna
fegurstu ævintýra.