Kirkjuritið - 01.05.1965, Blaðsíða 32
KIItKJURITIÐ
270
svo þrungnar af mannviti, snjallar að' hugsun og orðfæri, niátt-
ugar í trú — að þær firnast seint. Er vel, að út skuli vera að
koma bók með nokkm úrvali af ræðum hans.
Séra Sigurjón var skáldmæltur, eins og bræður lians, skáld-
in og ritstjórarnir Gísli og Einar Páll í Vesturlieimi og tón-
skáldið Þórarinn.
Þó liygg ég að hann hafi ekki ort Jnikið, nema þá lielzt í
þeim tilgangi að örfa lífsgleðina í kringum sig. En ræður sín-
ar vandaði hann, enda voru þær margar snildarlegar. Hugsun-
in var skörp, skilningurinn hvass og dómgreindin glögg. Þess-
vegna urðu ræður hans efnismiklar, ljóst orðaðar og auðskild-
ar en um leið yljaðar af lieitri samkennd lians með öllu mann-
lífi.
Allra manna var hann glaðastur, og í gleði lians og fjöri
Ijómaði sá drengilegi hlýleiki og velvild, er gerði öllum lilýtt
til hans. Söngelskur og músíkalskur var hann einnig og bar
gott skyn á þá hluti og skildi vel göfgandi mátt tónanna.
Ég liygg, að séra Sigurjón hafi talið sér skylt, að reyna að
fjölga sólskins- og gleðistundunum meðal síns fólks, enda tókst
lionum það áreiðanlega.
Um séra Sigurjón mætti skrifa langt mál, því að maðurinn
var margslunginn og hugaði að mörgu. Hugur lians var síop-
inn fyrir menningarstraumum samtíðarinnar, síleitandi og
spyrjandi. Það var líklega þess vegna, sem hann eltist svo vel.
Hann var ungur í anda fram til liins síðasta.
Séra Sigurjón kvæntist árið 1918 eftirlifandi konu shmi
Onnu Sveinsdóttur af skagfirzkri ætt, glæsilegri gáfu- og
ágætiskonu. Eignuðust þau 4 syni og 1 dóttur, fríðan lióp,
gæddan miklu atgerfi: Vöku, gifta og búsetta í Reykjavík
Sindra, póstafgreiðshunann, Frosta, lækni, Fjalar, prest, Mána,
kennara og organsnilling.
Minningin um séra Sigurjón verður okkur Héraðsbúuin
lengi hugstæð. Hann var — þegar í Iifanda lífi — orðinn liálf-
gerð þjóðsagnapersóna. Um liann gengu sögur — snjöll lilsvör
hans hafa flogið vítt. Þannig hlýtur jafnan að fara þegar
frumlegir gáfumenn eiga í lilut.
En fólkið, í víðlendum sóknum lians, sem þekkti liann bezt,