Kirkjuritið - 01.05.1965, Blaðsíða 31
KIRKJURITIÐ
269
Árið 1920 fékk li ann Kirkjubæ í Hróarstungu. Var hann þá
kominn aftur lieim í nágrenni æskustöðvanna og ættfólksins.
A Kirkjubæ bjó liann síðan alla sína prestskapartíð, 40 ár,
en árið 1957 lét liann af störfuni, og fluttist til Reykjavíkur.
Eftir að séra Þorvarður Þormar livarf frá Hofteigi 1928, norður
í Laufás, bættist þjónusta Hofteigsprestakalls við séra Sigur-
jón, og þjónaði liann þessum prestaköllum báðum síðan. Má
fullyrða að séra Sigurjón bafi því í 3 áratugi þjónað einu víð-
lendasta og erfiðasta prestakalli á Islandi. En liann kvartaði
aldrei undan því; orka lians var mikil og dugnaður, og hon-
um var ekki tamt að láta erfiðleika vaxa sér í augum. Hann
búsvitjaði og ferðaðist ótrauður um langa vegu fram á efri ár.
Séra Sigurjón verður Austfirðingum, og þó fyrst og fremsl
Héraðsbúum lengi minnisstæður. Hann var maður „mikilla
sanda og mikilla sæva“, stór í sniðum og skörungur að allri
gerð. Það smækkaði engan að blanda við liann geði, þvert á
móti.
Hika ég ekki við að segja, að með lionum sé genginn einn
svipmesti persónuleiki bér eystra. Til þess bar margt. Skarpar
gáfur og frumleiki í liugsun, mikill þróttur til líkama og sál-
ar, líf og fjör, gleði og birta, allt þetta einkenndi liann, fylgdi
bonum og gerði liann ógleymanlegan öllum, er kynntust bon-
um.
Séra Bjarni vígslubiskup Jónsson, minntist þess í útfarar-
ræðu sinni, að gleðin liafi fylgt honum inn á lieimili sóknar-
barnanna. Það er vissulega satt.
Séra Sigurjón átti marga vini í sóknum sínum, sem hlökk-
uðu til komu hans sem hátíðar. Það voru ekki sízt einstæð-
tngar eða þeir, sem áttu andstreymt á einlivern liátt. Þeini var
bann liinn góði sálusorgari, ríkur af samúð og skilningi, og jafn-
framt binn bjartsýni trúmaður, sem var svo sýnt um, að lyfta
þejm upp með sér, er daprir voru, kvíðandi eða þrekvana.
Innileg samkennd lians með börnum sorgar, sjúkleiks og
'auna ýmis konar, var lieit og einlæg, og átti ekki minnsta
þáttinn í að gera liann svo ástsælan, sem raun bar vitni.
Hann var áhrifamikill ræðumaður og oft snjall með afburð-
uni. Lifa margar af ræðum lians í niinni sóknafólks lians —