Kirkjuritið - 01.05.1965, Side 25
Ályktanir Prestastefnu Islands
1965
ilykianir prestastefnu fslands 1965
Prestastefnan fór fram samkvæmt dagskrá þeirri, sem þegar
liefur birzt í ritinu. Ávarp og skýrsla biskups eru prentuð hér
ab framan. Einnig útvarpserindi séra Eiríks Eiríkssonar á Þing-
völlum. Prédikun séra Páls prófasts Þorleifssonar kemur vænt-
anlega í næsta hefti.
Millifundanefndin um fermingarundirbúninginn, sem í sátu:
Séra Óskar J. Þorláksson (form.), séra Gunnar Árnason, séra
Magnús Guðj ónsson, Magnús Gíslason, námsstjóri og Þórður
Kristjánsson, fulltrúi, lagði fram tillögur sínar ásamt all ítar-
legri greinargerð.
Skipuðu fundarmenn sér í bópa, er yfirveguðu þær, og varð
að lokum samkomulag um að leggja fram tillögur nefndarinn-
JMeð tiltölulega litlum breytingum. Fara þær ályktanir í sínu
endanlega formi bér á eftir:
Prestastefna íslands, haldin í Reykjavík 1965, befur tekið lil
Mtbugunar nefndarálit það, sem lagt befur verið fyrir presta-
stefnuna og samið af nefnd þeirri, er skipuð var samkvæmt á-
lyktun síðustu prestastefnu til þess að gera tillögur um ferm-
nigarundirbúninginn og annað, sem ferminguna varðar.
Prestastefnan vill eins og áðnr leggja áherzlu á helgi og þýð-
lngu fermingarinnar og lengsl liennar við skírnina, og nauð-
syn og mikilvægi fermingarfræðslunnar fyrir framtíð kristin-
dómsins í landinu og alla sanna og lieilbrigða þjóðmenningu.
Með þetta í liuga samþykkir prestastefnan þær tillögur, sem
fram koma í áliti nefndarinnar.