Kirkjuritið - 01.05.1965, Qupperneq 20
KIRKJUIiITlÐ
258
verki að gegna, að það geti stuðlað að endurskoðun kirkju-
legrar löggjafar og lirundið fram skynsamlegum og nauðsyn-
legum nýmælum í löggjöf.
Af öðrum málum, sem Kirkjuþing afgreiddi vil ég nefna
ályktun um nýskipan biskupsdæmisins, en um frekari undir-
búning þess máls var óskað eftir aðild Prestastefnunnar og
kemur það á dagskrá liér á sínum tíma.
Prestakallanefnd
Á þessu vori liefur kirkjumálaráðberra skipað nefnd til þess
að gera tillögur um skipun prestakalla. Formaður liennar er
Ásgeir Pétursson, sýslumaður, en aðrir nefndarmenn eru: 01-
afur Björnsson, fulltrúi í kirkjumálaráðuneytinu, sr. Ingólfur
Ástmarsson, biskupsritari, Páll IColka, kirkjúráðsmaður og sr.
Sigurður Einarsson, Holti.
Nefndin skal skv. bréfi ráðberra braða störfum sínum og
liafa tillögur búnar fyrir næsta Alþing.
Sálmabókarnefnd
Sálmabókarnefnd liefur haldið áfram endurskoðunarstarfi sínu.
Nii liefur tveimur mönnum verið bætt í nefndina. Eru það
skáldin Tómas Guðmundsson og síra Sigurður Einarsson. Eg
fagna því að þessir menn gáfu kost á sér til þessara nefndar-
starfa, sem nú fara að þokast á það stig, þar sem mestur vandi
bíður. Enn vil ég biðja presta og aðra áhugamenn, sem ekki
liafa ennþá látið nefndinni í té álit eða tillögur að láta ekki
undir liöfuð leggjast að gera nefndinni viðvart um óskir sínar
og ábendingar.
Ný prentun sálmabókar
Ný prentun Sálmabókarinnar var gerð snemma á þessu ari,
þar sem prentunin frá 1955 var til þurrðar gengin. Þessi nýja
prentun er að sjálfsögðu óviðkomandi þeirri endurskoðun, sem
er á döfinni. En það vona ég, að texti bókarinnar hafi batnað
nokkuð frá því sem var, því að í fyrri prentun voru ýmsar
meinlegar villur og sumar bverjar þess kyns, að kunnir sáhn-
ar voru jafnvel lítt hæfir til notkunar. Hafði þó ekki verið