Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Page 17

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Page 17
N. Kv. ÚR MINNINGUM E. J. BREIÐFJÖRÐS 7 ingjar. Við smalarnir vissum upp á hár, hvaða dag þeirra var von úr kaupstaðnum. Þá stilltu'm við svo til að vera staddir með ærnar sem næst veginum, því að þá gátum við átt von á að fá góðgæti að bragða. Svo biðum við í heiðarbrekkunum við veginn, þangað til ferðafólkið kom með klyfjahest- ana neðan dalinn. Fór það af baki, er það sá okkur, og eitt sinn tóku bræður tveir, vin- ir foreldra okkar, upp vasapela sína og gáfu okkur að súpa á brennivíni; en frændstúlk- ur okkar tóku upp hjá sér kandíssykur, hagldabrauð, skonrok, rúsínur og sveskjur heilar hnefafyllir, og gáfu okkur; þá lyftist nú brúnin á drengjum, og allt var sælgætið með þökkum þegið. Ofurlítið fundum við á okkur af víninu, en ekki var það nema til liressingar, og ekki olli það neinum snurðum á skyldustörfunum. Sælgætinu gerðum við góð sk.il, sem geta má nærri Svo þegar heim kom, biðu okkar þar miklar birgðir af brauði, rúsínum, sveskjum og sykri, sem stúlkurnar, frænkur okkar, höfðu skilið þar eftir handa okkur, því að þær höfðu ekki búist við að hitta okkur frammi í dalnum. Þetta ráð okkar, að sitja fyrir ferðafólkinu, hafði því orðið til þess að við fengum tvöfáldan skámmt, sem entist okkur daginn eftir í hjásetunni. Þegar við höfðum setið Iijá i hálfan mán- uð, var breytt til þannig, að við sátum einir hjá annan hvorn dag. Varð þá minna um skemmtun en áður, þegar við vorum ekki lengur tveir saman; en sá, sem heima \ ar átti að reka kýr í haga og s-ækja þær á kvöld- in; sömuleiðis átti hann að moka flórinn í fjósinu, eins skemmtilegt verk og það var. Þrekið var af skornum skammti, rekan þung og mykjan lapþunn, svo að verkið sóttist ærið seint. Við vorurn þá látnir fara í ljós- leita nærbuxnagarma utan yfir til hlífðar við moksturinn; urðu þær heldur kámugar og skjöldóttar við verkið, sem við var að búast. — Heldur þótti mér svalt og ónotalegt að híma einn yfir ánum frammi í dalbotni, þegar rigning var og súld, enda var þar ekkert afdep tii skjóls, og stundum var ég gegnvotur frá morgni til k\ölds. En þegar sólskin var og gott veður, var allt öðru máli að gegna. Þessu urðu börn og óharðnaðir unglingar þá að venjast; þeir urðu að gera það gagn, sem þeir gátu, jafnskjótt sem nokkur tök voru á því. 2. Mannslát. Eg var sex ára gamall, þegar eg í fyrsta sinn var viðstaddur mannslát. Þá dó gömul kona, er Margrét hét, sambýliskona for- eldra minna; bjó hún m-eð syni sinum, Jó- hanni, og fóstursyni sínunr, er Júlíus hét. Þetta var á sumarmorgni, og stóð eg við fótagafl gömlu konunnar og horfði á, þeg- ar hún gaf upp höndina. Jóhann bað þá Júl- íus að sækja hest í haga, því að lrann ætlaði þá þegar að ríða eithvað af bæ, til þess að fá smíðaða kistu utan um móður sína. Bað Júlíus mig þá að ganga með sér, og gerði eg það. Þegar við vorum komnir af stað, fór JúMus að segja mér, að fóstra sín væri kom- in til Guðs; hann var orðinn fimmtán ára gamall og því betur að sér en eg í andlegum efnum. Eg dró þessi orð hans í efa og barði því við, að hún lægi enn í rúmi sínu. Þá svaraði hann, að sál hennar væri komin til Guðs, en holdið yrði grafið í jörðina. Þetta fannst mér lítt skiljanlegt. „Hvernig fer sálin að komast upp í himininn?“ spurði eg, „svona voða-hátt! Nær nokkur stigi svo hátt upp?“ ,,Nei,“ svaraði hann, „sálin hef- ur vængi, sem Guð leggur henni til, þegar manneskjan deyr, svo að hún geti flogið upp til hans.“ Um þetta vorum við að masa, þangað til við vorurn komnir heim með hrossið. — Svo kom greftrunardagurinn, og þá var liíkið sungið út alla leið út fyrir tún. Þetta sama sumar, nokkuð seint á degi, var eg eitthvað að dunda úti við. Allt í einu heyrði eg svo fagian söng framan úr daln- um, að undir tók í fjöllunum. Greip mig
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.