Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Side 38

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Side 38
28 DYVEKE N. Kv. þ;í strýkur drottningin hár yðar og rekur þunglyndið ;'i brótt." „Drottningin,“ sagði hann reiðulega. „Sigbrit talar um drottninguna og þú líka. Hvað kemur luin ykkur við?" Hann ýtti henni frá sér, og hún horfði á hann ráðþrota. „Ojæja," sagði hann og andvarpaði, „Elísabet er góð og gæf eins og þú, veslings ólánsbarn. Hvað á eg að gera með tvær góð- ar og gæflyndar konur, þegar eg get ekki elskað nenia aðra þeirra?" 32. kap. Meðan konungur var fjarverandi. Kristján konungur liafði ráðið af að ferð- ast til Gottorp til jaess að leita hófanna um lán hjá föðurbróður sínum. „Það er hættuför,“ sagði Sibgrit. „Ef her- toginn kæmi Iiingað, þá mundurn við fá lán- ið. Sé hann ein shygginn og við, setur hann yðar náð þunga skilmála, þegar þér eruð kominn til hans á Gottorp." „Egslepp úr gildrunni frá honum,“ mælti konungur. Af því að honum flaug í hug að fara ei: til vill alla leið til Brússel, til Jress að reyna að kría út eitthvað af heimanmundinum, þá fór hann til Elísabetar drottningar og trúði henni fyrir þeirri fyrirætlun. Hann kom sjaldan til hennar og aldrei fyrr hafði hann minnzt á stjórnmál við hana. Drottn- ingin roðnaði af trleði. „Eg vildi óska, að eg hefði getað farið þá för fyrir yður,“ mælti hún. „Eg skyldi lá frænku til að bæta fyrir skuldseigjuna." „Það getið þér ekki, Elísabet; en ef eg fer svo langt, verðið þér að stjórna ríkinu í 1 jar- veru minni." Hún horfði hissa á hann. „Hverjum stendur það nær en yður?" mælti hann. „Þegar konungurinn er fjar- verandi, verður drottningin að stjórna. Þó að Jrér séuð ekki alin upp við stjórnr izku, Jrá hafið þér ágæta menn til aðstoðar, fvrst og fremst Mogens Gjöe, og auk hans Ove Bilde og Lage Urna. Svo vil eg biðja yðui, ef yður sýnist svo, að ráðfæra yður við rnann, sem eg met mjög mikils, þótt ekki sé hann aðalsættar; hann lreitir Hans Mikkel- sen og mun bregða við, ef Jrér sendið Al- brekt eftir honum." „Eg skal fara alveg eftir boðurn yðar,“ mælti drottning. „En hvers vegna biðjið þér mig ekki að leita ráða Sigbritar?" „Munduð Jrér gera Jrað, ef eg bæði ýður þess?" spurði konungur hissa. „Það muudi eg gera," svaraði hún. „Hvers vegna ætti eg að óttast hana, — hún, sem hefur bjargað lífi mínu, og þér feitið lang- mest hennar ráða." Kristján konungur hneigði sig djúpt og bar hönd liennar að vörum sér. „Guð launi yður fyrir göfuglyndi yðar, Eh'sabet," sagði ltann og viknaði við. — Svo hélt hann af stað með rniklu fylgd- arliði. Drottningin var glöð af virðingunni og heiðrinum, sem liann hafði sýnt henni, en Dyveke var harmþrungin. Hún hélt fast um háls konungs, þegar Itann kvaddi hana, svo að hann gat varla slitið sig lausan. Hún kvað sér standa beyguf af þessari ferð lians og sig hefði dreymt illa fyrir henni, svo að hún byggist varla við að sjá hann framar. „Hvaða vitleysa," sagði konungur. „Þú verður að hrinda frá Jrér þessurn heimsku- legu hugsunum og vera glöð á svip, þegar eg-kem aftur. — Dyveke, litla dúfan mín, nú verð eg að leggja af stað. Heyrirðu ekki hestinn rninn stappa úti á hlaðinu?" Það gerði hesturinn líka. Og allir herra- mennirnir, sem áttu að fylgja hans náð til Gottorp, vorti afar hneykslaðir. „Hann er að sækja síðustu fyrirmælin til Sigbritar kerlingar," sagði einn þeirra. „Hann verður að kjassa Dyveke stundar- korn um leið og hann kveður," sagði annar. Svo kom konungur, kátur og fjörlegur, steig á bak hestinum og laut niður að Tor- ben Oxe, sem stóð hjá honum. „Gætið vel að Dyveke," hvíslaði hans náð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.