Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Síða 72

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Síða 72
62 BOKMENNTIR N. Kv. þjóðanna“, störfum hennar og verkefnum. Þá er og skýrt frá undirbúningi að samtök- um Sameinuðu þjóðanna og starfsskrá þeirra birt. Er allt þetta vfirlit bið fróðleg- asta og handhægt að bafa það saman komið á einum stað í aðgengilegu formi. I ritinu eru ýmsar ræður birtar, sem haldnar bafa verið á alþjóðafundum og lýsa þær viðhorf- um ýmissa forystumanna beimsins til áður- nefndra samtaka og bverjar vonir þeir hafa við þau tengt. En margt þarna fróðlegt og skemmtilegt og góður fengur að bók þessari öllum þeim, sem láta sig alþjóðamál og upp- eldi þjóðanna nokkru skipta. Kristleifur Þorstcinsson hefur sent frá sér stórt bindi af borgfirzkum þáttum, er lieita: Úr byggðum Borgarfjarðar, IE bindi. Hef- ur Þórður sonur hans búið þættina til prentunar eins og fyrra bindið, er út kom fyrir nokkrum árum. I þessu bindi eru end- urprentaðir þættir þeir, er á sínum tíma birtust í Héraðssögu Borgarfjarðar, en nokkru við aukið. Er góður fengur að því, að fá þá á einum stað, því að Héraðssagan er nii löngu uppsekl og ófáanleg. Kristleif- ur er bins vegar svo merkur rithöfundur, að vel samir, að ritum bans sé safnað í eina lieild, en þeirra þurfi ekki að leita innan um söfn annarra. Er útgáfa þessi á ritum bans bin myndarlegasta og samboðin góðri bók. Borgarfjarðarþættir Kristleifs fjalla eink- um um binn efri hluta héraðsins. Koma þeir víða við, og munu fá atriði hins daglega lífs þar í byggðum á seinni hluta 19. aldar, sem ekki er getið, og fátt í þjóðháttum og rnenn- ingu þar í héraði á sama tíma, sem ekki eru gerð nokkur skil. Eiunig er þar allmikill persónufróðleikur. Frásögn Iíristleifs er skýr, og hann bregður upp ágætum mynd- um af horfinni tíð fyrir augu lesanda. Er sú trúa mín, að þættir lians muni því meira metnir, sem lengra líður. Þeir eru ómetan- leg heimild um íslen/ka menningarsögu á liðinni öld. Ekki cr mér kunnugt, hvort Kristleifur eigi í fórum sínum efni í þriðja bindið úr byggðum Borgarfjarðar, en óhætt mundi honunr að láta það frá sér fara, því að ekki mun hann skorta lesendur. Gamalt og nýtt heitir dálítið kver eftir Sigurð Þorsteinsson, eru það minningar höf. um uppvöxt og æsku. Frásagnir af atburð- um, svo sem byggingu Ölfusárbrúarinnar, frá landskjálftunum 1896, o. fl. Þá getur höf. og nokkurra merkismanna og að lokum er hugleiðing höf. um ýmsa þætti þjóðlífs- ins nú á dögum. Ýmislegt fleira er í riti þessu, þótt ckki sé það stórt né láti mikið yíir sér. Höf. er hófsamur í frásögn, en hik- ar þó ekki við að láta skoðun sína í ljós, hvort. sem öðrum kynna að líka betur eða verr, svo sem háttur er einarða maniia. Sómir þessi litla bók Sigurðar Þoisteinsson- ar sér vel meðal minningabóka þeirra, sem birzt hafa á undanförnum árum. Björgun og lífgun eftir Jón Oddgeir Jónsson og Vigni Andrésson. Þetta er lítið kver, en hið þarfasta í' hvívetna. Eru þar gefnar leiðbeiningar og reglur um, hversu skuli að farið, er bjarga þarf mönnum úr vatni, auðu eða ísi lögðu. Einnig er því lýst, hverjar aðferðir skuli hafa við lífgun þeirra, sem að því eru komnir, að drukkna. Eru leiðheiningar þessar skýrar og gagnorð- ar. Fjöldi mynda er í bókinni. Nú er sund orðin skyldunámsgrein við skóla landsins. Væri þá ekki rétt að bæta einnig við auk- inni kennslu í björgun og lífgun og þá er þetta kver tilvalinn leiðarvísir. F.n raunar ætti hver maður að kynna sér megin atriði þess, því að enginn veit hvenær hann kann að hafa JoörI þess fróðleiks, sem þar er fram reiddur. Þá hefir og ísafold gefið iit nokkrar þýdd- ar skemmtisögur. Má ai: þeim netna Ester, Hansinu Sólstað og Á sama sólarhring. Nú á seinni árum hefur ísafold annast útgáfu fjölda kennslubóka fyrir framhalds- skóla landsins. t þeim hópi er nýútkomin bók, sem nokkurt nýjabragð er að, en það
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.