Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Page 84

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Page 84
74 FLINK STÝRIMAÐUR N. Kv. um, herfum, ristuspöðum og öðvum áhölcl- um, sem og trjáplöntum ýimiskonar og fræ- tegundum, er enn eigi þekktust suður þar, ennfremur innanstokkmunum af nýjustu tízku o. fl. o. fl. — Öllu ægði þessu nú sam- an í lestinni á Tasmaníu — og að síðustu hafði Grafton eigi gleymt að vera sér úti um tvo góða fjárhunda er dafnað höfðu heldur vel undir nöfnunum: Romulus og Remus. Frú Grafton var hin elskulegasta og mikilhæfasta kona, en var nú nokkuð farin að láta undan og oft lasin og varð að hlífa sér heilsunnar vegna. Börn þeirra Jijóna voru eins og áður um getur fjögur talsins: Vilhjálmur, Tlionras, Karólína og Albert. Vilhjálmur var elztur og skynsam- astur þeirra allra og liið mesta mannsefni, ötull og ósérhlífinn og svo fullorðnislegur í allri framkomu, að athygli vakti. Tliomas var aðeins ö ára og hinn mesti fjörkálfur, svo að hann oft eigi fékk stjórnað sér. Hann var hinn mesti órabelgur og fann oft upp á ýmsum brellum er gátu komið sér illa. Karó- lína var sjö ára, gott og hlýðið barn. Hið fjórða og yngsta barnanna var Albert og var hann enn eigi árs gamall. en sérlega efnilegur snáði eftir aldri. Hans gætti mið- aldra svertingjastúlka, er fhitzt hafði frá Kaplandi til Sidney fyrir nokkrum árum, og ráðist liafði sem þjóníistustúlka. eða þó einkum barnfóstra til þeirra Graftons-h jón:u og höfðu þau tekið hana með sér í þessa Englandsför, og skyldi hún gæta barnanna, enda óhætt að trúa henni fyrir þeim. Skipstjórinn á „Tasmaníu“, Osborn að nafni, var einkar duglegur og samvizku- saraur yfirmaður og bezti drengur. Hann var góður og nákvæmur undirmönnum sín- um og síkátur og glaðvær í allri framkomu sinni, en hann v ildi láta lilýða sér í öllu. — Um Mackintoss yfirstýrimann var nokkuð öðru máli að gegna. Að sönnu var hann dugnaðarforkur hinn mesti og gegndi störf- urn sínum vel og óaðfinnanlega, en hann var þurrdrumbslegur, afundinn og fú 11 í allri framkomu sinni gagnvart unclirmönnun- um og eins stórbokkalegur og ókurteis, eins og Osborn var alúðlegur og kurteis. Og hann tamdi sér það orðbragð gagnvart skip- verjum, er honum var síður en svo til sóma. Hartn var skozkur að ætt, og átti því ekki langt að sækja það, ]ró hann væri grófgerður og Jirottalegur í viðmóti, því að Skotum hættir óneitanlega til að vera það, ef satt skal segja. Osborn skipstjóri var vanur að segja, að liann bæri alveg ótakmarkað traust til Mackintoss yfirstýrimanns í öllu er að störfum lians laut, því að hann hefði aldrei þekkt ábyggilegri rnann, en þó færi því mjög fjarri, að hann væri vel ánægður með hann að sömu leyti. Öðrum stýrimanni, Flink, höfum vér þegar lýst. Hásetar voru nú 13 talsins á Tasmaníu, en þeir voru allt- of fáir á svo stóru skipi, enda hafði Osborn skipstjóri upphaflega ráðið 18 háseta, en 5 þeiira líkaði eigi \ istin um borð og voru stroknir frá skipinu, áður en það lét í haf. Skipstjóri nennti þá eigi að vera að verja tíma í að vera sér úti um nýja háseta í þeirra stað og lagði svo af stað með þá 13 er eftir voru, en það hefði hann áreiðanlega ekki gert, hefði hann mátt sjá fyrir alla þá erfið- leika er í vændum voru fyrir vesalings „Tas- maníu“ á hinni örlagaríku ferð hennar frá Englandi til Nýja-suður-Wales, en nú var komið sem komið var og eigi urn það að fást. Nú varð að duga eða drepast með þessa áhöfn og taka hverju því er mæta kynni. II. KAPÍTULI. I logni og sójskirii. Hið látlausa fárviðri var nú búið að ham- ast í fulla fjóra daga með óhemju sjóróti og öldugangi. En svo mátti segja, að allt í einu dytti í dúna logn. Það voru heldur ekki um- skipti fyrir hina fámennu og aðþrengdu skipverja á „Tasmaníu" eftir allt volkið og ofreynsluna undanfarna daga, að fá nú of-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.