Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Page 109

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Page 109
N. Kv. FLINK STÝRIMAÐUR 99 öllu því rekaldi úr skipinu, er við fáum yfir komist, einkurn nothæfum plönkum og öðrum trjáviði, er okkur að gagni rná koma. Það er nauðsyn á að bjarga öllu slíku undan sjó, áður en það tekur út aftur.“ 'Þessu var slegið föstu, og að borðhaldi loknu héldu þeir til strandar. Flink hafði með sér sterkan kaðal, til þess að bregða á og draga upp á stærstu trén og plankana, senr þeir eigi réðu við á annan hátt, enn- frernur tunnur þær og kassa, er á land kynftu að hafa skolazt. Um var að gera að draga allt undan sjó, svo að engu skolaði út aftur. Þetta var erfitt verk, en það var líka rnargt og mikið, sem þeir þannig björguðu undan, er dagur þraut og eigi var hægt að draga rneira undarr sjó þennan daginn. Þeg- ar lreim að tjaldstað kom, var segldúkurinn og sængurfatnaðurinn þurr orðinn, og brátt var tjaldið komið upp aftur, enn rammbyggilegra en áður. Næsta dag var veður hið fegursta, glaða sólskin og heiðríkja, og engin bára við ströndina. Nú hjálpaði Villi til að bjarga og draga undan sjó. „Hvað er það, sem þarna er á floti?“ spurði Villi og benti á eitthvert rekald rétt við landið. Það líktist ekki tunnu, og planki var það eigi. „Hvað það er? Það skal eg segja þér,“ sagði Flink. „Það er kýrin!“ Nú sáu þeir feðgar einnig greinilega, að þarna var vesalings kýrin. Og allt í kring- um hana var fullt af hákörlum, sem auð- sjáanlega vildu ná sér í svona lostætan bita. Dagarnir liðu, og alltaf var nóg að gera við að bjarga undan ýmsu rekaldi úr skij)- inu. Loks voru þeir feðgar einir um björg- unina undan sjó, því Flink var nú farinn að setja í stand bátinn, því nú stóð til að fara að flytja byggðir sínar hinum megin á eyna. Frúin og stúlkan höfðu einnig nóg að gera við að koma dóti sínu og búsáhöldum fyrir í kistum og kössum, og loks — viku eftir stórviðrið eftirminnilega — var allt undir flutninginn búið. Eftir nokkrar bolla- leggingar varð það að ráði, að þeir Flink og Villi skyldu fara með annað tjaldið og sængurfatnaðinn. Svo skyldu þeir sækja eld- hússáhöldin, fatnað, tól og annað það nauð- synlegasta. Grafton og sjölskylda hans og stúlkan skyldu ganga gegnum skóginn til síns verðandi heimilis. Smám saman skyldu þeir Flink og Villi svo selflytja það, sem eftir var af farangrinum. Veðrið, sem þeir fengu í fyrsta flutningn- um, gátu þeir eigi ákosið betra. Þegar Jreir á drekkhlöðnum bátnum höfðu róið út úr víkinni, dró Flink ujrp segl, og sigldu þeir á tveimur tímum til austurstrandarinnar, að oddanum, sem sundið lá í gegnum og Jreir skyldu skríða hægt í gegnum. Oll var leiðin nær sjö kvartmílum. Hægt og gæti- lega var nú róið um sundið, og er lent var, var í skyndi borið af bátnum. Flink bein- línis hlakkaði til að setjast að á Jressum yndisfagra stað. Flér voru þeir í hlé við skóginn og myndu lítið hafa af óveðri og byljum að segja. Aður en aftur var lagt á stað til að sækja annan flutning, brá Villi sér ujrp til að at- liuga uppsjrrettuna, sem Flink áður hafði fundið. Hún var nú barmafull af tærasta uppsprettuvatni! Það gekk nú eigi eins greiðlega að kom- ast til baka, því nú var mótvindur og dálít- ill barningur. Aftur á rnóti var bátkænan nú tóm og því léttari í róðri. Þeir voru tvo tíma á leiðinni heim, og áður en þeir lentu, sáu Jjeir frúna og Tom í fjörunni, veifandi hvít- um klútum til að fagna komu þeirra. „Nú fer eg með ykkur næst,“ kallaði Tom á móti Flink, er þeir lentu. „Ferð með okkur,“ svaraði Flink. „Nei, til þess ertu enn of ungur og óþroskaður, að fara í svona ferðir.“ „Nei,“ sagði Júnó, „en þú gætir sjálfsagt mjólkað geiturnar!" „Húrra! Eg á að fara að mjólka geit- 13*
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.