Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Page 139

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Page 139
N. Kv. FLINK STÝRIMAÐUR 129 slæma, fljótfærna drengnum sínum, sem elskaði hana svo innilega. Það var komið svarta myrkur, ex eg fór út úr kirkjugarðinum. Eg fór aftur heim til gömlu konunnar og var hjá henni og manni hennar í þeirra vistlegu heimkynnum, og loks gisti eg hjá þeim um nóttina. — Næsta dag fór eg svo á fund ferðafélaga míns, eins og um var talað. A látunsspjaldi yfir dyrunum mátti lesa: málaflutningsmað- ur. „Hvað gat hann viljað mér?“ hugsaði eg með sjálfum mér. Eg fékk brátt að vita það. Hann sagði mér, að við fráfall Mastertons skipasmiðs hefði sér verið falin skipting arfsins eftir hann. Kvaðst hann í eftirlátn- um skjölum gamla mannsins hafa fundið skjal, er gaf ótvírætt til kynna, að föður mínum sáluoa hefði borið að fá talsverðan o hluta af ábyrgðarfúlgunni fyrir skip það, er jreir áttu í félagi, faðir minn og Masterton. Nú, þar sem eg væri enn á lífi, bæri mér sem syni föður míns sáluga, vátryggingarféð að hans hluta. Þetta lægi svo í augum uppi, að eigi yrði vefengt. Málaflutningsmaðurinn kvaðst skyldi ganga löglega frá þessu fyrir Flinks hönd. Hér væri eigi heldur um neitt smáræði að ræða, því að upphæðin væri tvö þúsund pund sterling! Þetta gátu nú talist góðar fréttir! Eg ætti ekki að þurfa að taka það fram, að eg tók þessu tilboði málaflutningsmannsins með fögnuði. Hann var þarna að gera mig að velstæðum manni, mig, sem allt til þessa hafði rétt haft til hnífs og skeiðar. Eg fékk vátryggingarféð, og varði því í það að kaupa mér liluta í verzlunarskipi einu. Á því sigldi eg' til Barbados, hlóð það með sykri og vildi svo snúa aftur til Englands. En þarna leidd- tst mér að þurfa lengi að bíða eftir því, að fá að komast í skipaflota, til Jress að fá notið verndar hans yfir hafið. Eg var svo upp með mér og hreykinn yfir skipi mínu, sem reynst hafði mæta vel í alla staði, að eg kunni mér ekkert hóf. Á meðan eg lá í Bar- bados, lét eg koma fyrir fjórum fallbyssum í skipi mínu með tilheyrandi skotfærum. „Það er leiðinlegt að þurfa að vera að slæp- ast hér dag eftir dag, og eyða tímanum,“ sagði eg við sjálfan mig. „Ættirðu ekki að freista liamingjunnar?“ Jú, eg gerði það! Létti akkerum og lagði af stað heimleiðis, án allrar skipaverndar. Færu frakkneskar varðbergssnekkjur, eða þefhundar, eins og eg oftast kallaði þá, að ónáða mig.á einhvern hátt, Jrá skyldu fallbyssurnar mínar jafna leikinn. Jæja, eg liélt í áttina til Englands, og allt gekk vel í þrjár vikur. En nú breyttist veð- ur í lofti. Þegar við vorum að leggja inn í Ermarsund, skipaleiðina milli Englands og Frakldands, Jiá kemur frönsk varðbergs- snekkja auga á okkur og eltir okkur. í sarna bili urðum við fyrir þeim óhöppum, að stórstöngin íell útbyrðis — og þá um leið var útséð um okkur. Snekkjan náði okkur og tók okkur og hafði okkur í eftirdragi. Þá nótt svaf eg í franskri dyflissu. Og það var ekki eina nóttin, sem eg varð að gera mér það að góðu. Nei, í sex ár sat eg í fangelsi, og það var langur og leiðinlegur tími. Að Jiessum tíma liðnum sáum \ ið, eg og fjórir aðrir enskir fangar, okkur færi á að strjúka, og eftir mikið flakk og mörg söguleg æfin- týri, komumst við loks heini til Englands með dönsku skipi. Enginn okkar átti einn einasta eyri í vasanum og klæðnaður okkar mátti eigi vera bágbornari en hann var. Eg þykist vita, að þér nú viljið spyrja mig hvort skipið nritt eigi hafi verið vátryggt? Jú, og það hátt vátryggt. En eg hafði misst réttinn til að gera neina kröfu til greiðslu á vá- tryggingarfénu, þar sem eg sigldi án skipa- verndar, en Jrað var með öllu bannað, eins og Jrá á stóð. Nú var eg orðinn fátækur aftur eins og kirkjurotta, og varð Jrví að sætta mig við hverja þá stöðu, er mér byðist. Eg vildi helzt ná í stöðu, sem annar stýrimaður, en við mér var ekki litið til þess. Eg þótti of illa til fara. Eg battð mig þá fram sem háseta, og 17
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.