Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Page 146

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Page 146
136 FLINK STÝRIMAÐUR N. Kv. XXX. KAPÍTULI. Malaja-konurnar. Alltaf fór veðrið versnandi. Hann var svo hvass, að það brakaði í hverju tré í hús- inu alla nóttina. Börnin sváfu vært og rótt, en Vilhjálmur og hinir eldri lágu vakandi alla nóttina, til þess er lýsti af degi, og auð- vitað í ömurlega þungurn hugsunum. Þetta var versta nóttin, sem þau höfðu lifað þarna á eynni. Flink fór snemma á fætur; og fyrir sólar- uppkomu var hann kominn niður til sjávar með sjónaukann sinn. Aldrei liafði hann verið hvassari en nú, og auðvitað var nú hvergi skipið að sjá. „Segið mér, Flink minn,“ var hið fyrsta, sem frúin sagði, er hann kom heim aftur, „haldið þér að skipið láti sjá sig aftur?“ „Um það verður ekkert með vissu sagt, kæra frú. Hann hefur verið svo óhemjti livass. Hugsanlegt er, að það li'ggi hér ein- hvers staðar í nánd, en eins sennilegt, að það sé komið margar sjómílur til hafs.“ „Það er lítil huggun í þessnni orðum yðar, Flink,“ sagði Grafton hnugginn. „Lítil huggun er betri en mikil von- brigði,“ sagði Flink. „En annars höfum við ástæðu til að vera glöð og vongóð, jafnvel þó skipið ekki komi hingað aftur.“ „Hvernig má það vera?“ „Það stendur svo á því, að af nafninu „Tasmanía“ í gulu merki vita skipverjar ofur vel, að hérna á eynni eru skipbrots- menn frá „Tasmaníu“, og þegar þeir korna einhvers staðar til hafnar, þá tilkynna þeir auðvitað strax, að þeir liafi orðið okkar var- ir hérna á eynni. Afleiðingin verður óhjá- kvœmlega sú, að skip verður sent liingað eftir okkur. Þetta er auðskilið mál!“ Eigi slotaði veðrinu þennan dag og næstu nótt. Daginn eftir dró ofurlítið úr mesta rokinu. Þeir Flink og Vilhjálmur voru á vanalegri morgungöngu niðri við sjóinn, og voru að skima í allar áttir, hvort eigi kæmu þeir auga á skipið, sem þeir hálft í hvoru voru að vona, að kæmi aftur, þótt sú von væri veik, að minnsta kosti hvað Flink snerti. Nú voru þeir í þann veginn að halda heim aftur, þegar Vilhjálmur allt í einu nam staðar, þreif í handlegginn á Flink og benti honum í suðurátt: „Hvað er þarna að kútveltast í sjónum? Er það ekki bátur?“ Flink var fljótur að gripa til sjónaukans. ,,Svo er’ sem þér sýnist, drengur minn. Það er bátur, og menn í honum!“ Báturinn, sem þeir ennþá sáu mjög ó- greinilega, bar nú óðum inn í brimgarðinn og kastaðist til og frá. Flink og Villi lilupu til fram í flæðarmálið, til að taka á móti bátnum. Þeir sáu nú að í lionum voru tveir menn, tveir villimenn, að minnsta kosti voru þeir ekki hvítir menn. Flink áleit, að þá hlyti að hafa hrakið frá stórri ey, er þeir gTÍlltu í þar í fjarska. „Að sjá hvernig þessir vesalingar af ítrasta mætti reyna að berjast fyrir lífinu,“ sagði Flink, „en nú er þeim líka borgið, og þeir stýra afburða vel.“ Ennþá augnablik, og litla kænan barst á'bárunni upp í flæðarmálið. Og á sarna augabragði ultu aumingja að- þrengdu vesalingarnir útaf niður í kænuna alveg magnþrota. Þeir Flink og Villi stukku til og drógu bátinn undan sjó. Nú sáu þeir að þetta voru tvær ungar malaja stúlkur, ófríðar með af- brigðum og ógeðslegar, með hörundsflúri. í flýti brá Villi sér heim til að sækja eitthvað lieitt til að styrkja þær á, og hressa við. Júnó var að elda liafragraut og fór hann með stærðar krukku af þeirri vöru til strandar aftur, og lét Flink þær svolgra þetta í sig með harðri hendi. Þetta kom að góðu haldi, og þó að aumingja strilkurnar áður mættu heita rænulausar, þá lifnuðu þær nú furðu fljótt við, og fengu fulla rænu. Villi lagði aftur á sprettinn heim og tilkynnti foreldr- um sínum, að gesti bæri brátt að garði. Svo brá hann sér aftur til strandar og faðir hans
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.