Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Page 158

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Page 158
148 FLINK STÝRIMAÐUR N. Kv. okkur, gengur á undan til að vísa þeim veg!“ Óvinirnir námu staðar. Þeir höfðu víst ekki búizt við svona traustu skotvígi. Þeir þyrptust saman í hóp og mösuðu og k]öft- uðu liver upp í annan og hver í kapp við annan. „Nú skjóta þeir herstjórnarráðstefnu á hjá sér,“ sagði Flink, „og þessi viðbjóðslegi, langi sláni þarna er auðsjáanlega höfðingi þeirra og yfirmaður. Eg vil aldrei reiða fyrst til höggs; eg ætla að ögra þeim með því, að láta þá sjá mig, þá varpa þeir að mér spjótum og kylfum, sem eg vík mér undan, en þá get eg líka með góðri samvizku sent þeim á eftir ofurlitla kveðju úr byssunni minni!“ Það fór eins og Flink gamli sagði fyrir. Þegar hann stökk upp á pallinn, svo þeir sáu hann, ráku þeir upp öskur mikil og óhljóð, stukku fram og vörpuðu fjölda spjóta að honum. En hann skaut sér undan og slapp ómeiddur. „Miðaðu nú nákvæmlega.drengur minn!“ En áður en Vi-lhjálmur skaut, skaut Graf- ton, og langi sláninn féll til jarðar. í sama bili skutu þeir báðir, Vílhjálmur og Flink, og tveir aðrir af óvinunum féllu steindauðir til jarðar. Já, það voru heitar móttökur. Svona féllu Malajarnir unnvörpum. Það greiddi og eigi lítið fyrir, að frúin og stúlkan hlóðu byss- urnar í sífellu og réttu þeim. Börnin voru lokuð inni, og var Jaeim óhætt. Kastvopn óvinanna þutu hvínandi í loft- inu, en Jrað bar engan árangur. Þeir hittu ekkert, hversu vel sem þeir reyndu að miða. Árásin stóð fulla klukkustund, en svo hörf- uðu Malajarnir og létu undan síga, eftir að hafa misst fjölda rnanna. „Jæja, nú megum við þó kasta mæðinni!" sagði Flink. „Þetta gengur eftir öllum von- um. Eg get eigi stillt mig um að dást að Jiér, Vilhjálmur, fyrir skotfimi þína, því luin er aðdáanleg. Æfðir hermenn gera það ekki betur. Ekki fór eitt einasta skot hjá þér til ónýtis!“ Frú Grafton spurði Flink, hvort hann héldi, að Malajarnir væru alfarnir. Nei, það hélt hann ekki. Þeir myndu áreiðanlega koma aftur, Joótt seinna yrði. Nú sætu þeir og-tækju ráð sín saman inni í skóginum. „Geturðu ekki gefið mér vatn að drekka, Júnó?“ spurði Vilhjálmur. Júnó hljóp niður að vatnstunnunni með ílát undir vatn, en kom strax aftur vatns- laus, og mátti lesa ótta og skelfingu úr hverj- um andlitsdrætti hennar. „Ekkert vatn! Ekkert vatn!“ sagð hún kjökrandi. „Hvað segirðu, stúlka? Ekkert vatn?“ var hrópað. „Nei, stóra tunnan var tóm!“ svaraði J únó. Flink varð alvarlegur á svipinn. „Hvern- ig víkur þessu \ ið? Eg fyllti hana á barnia, og luin lak ekki dropa!“ „Mér dettur núna nokkuð í hug,“ sagði stúlkan. „Þegar þvegið var seinast, átti Tom að sækja vatn í uppsprettuna. Hann var ótrúlega fljótur að því, og þér hælduð hon- um fyrir, hve fljótur hann væri. En hann hefur auðvitað sótt vatnið í tunnuna, en ekki nent að sækja Jrað í uppsprettuna. Svona stendur á Jjví, að tunnan er tóm!“ „Hvað er nú til ráða?“ spurði frúin. Stúlkan hljóp inn til að kcmast fyrir hið sanna. Jú, það stóð heima! Tom hafði tapp- að allt vatnið úr tunnunni. Nú sat hann organdi og hátíðlega lofandi, að þetta skyldi hann aldrei framar gera. „Það kemur of seint, það Ioforð!“ sagði Grafton, og var hinn reiðasti. „Allt var nú kornið í bezta lag, og umhyggja borin fyrir öllu því bráðnauðsyn legasta, en svo þarf nú þetta að koma fyrir, af því að svikull og brögðóttur strákhnokkinn nennir ekki að ganga nokkur skref!“ „Já, góði Grafton,“ sagði Flink. „Við skulum nú vona Jrað bezta, vona, að þessi óþjóðalýður komi eigi aftur, en lrverfi burt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.