Eimreiðin - 01.04.1932, Blaðsíða 78
198
TRÚIN Á MANNINN
EIMREIÐIN
Eldri trúarbrögðin segja, að maðurinn eigi að hlýðnast vilja
guðs.
Húmanistar segja, að maðurinn eigi aldrei að hlýðnast
neinu valdi, sem sé ofvaxið skilningi hans; hann megi ekki
þola neina rangsleitni eða þjáningu án mótmæla og skuli
ávalt reyna að burtrýma ástæðunum fyrir því illa.
Eldri trúarbrögðin segja, að sannleikann sé aðeins að fir*na
í einni trú, að guð hafi skapað heiminn og manninn.
Húmanistar segja, að sannleikur sé fólginn í öllum trúar-
brögðum og að heimurinn og maðurinn hafi orðið til fvrir
þróun.
Eldri trúarbrögð telja hugmyndirnar um synd, sáluhjálp-
endurlausn, bænir og tilbeiðslu mjög mikils virði og kjarna
trúarbragða.
Húmanistar leggja lítið upp úr þessum hugmyndum og teha
þær leifar af úreltum lífsskoðunum, þegar menn trúðu á harð-
stjórnarlega guðshugmynd. Bænir eru í þeirra augum ekkert
annað en lítilfjörlegt betl til guðs um að gera sér greiða e^a
þakklæti fyrir auðsýndan velgerning. Hvorugt á sér nokkra stoð
í náttúrunnar ríki og styðst aðeins við afgamlan misskilninð-
Eldri trúarbrögð vænta máttar af hæðum og hjálpar að
ofan. Húmanistar telja, að allur máttur komi að innan og a^
þannig verði allur þroski með eðlilegum hætti. Enginn, hvorki
guð né maður, geti frelsað aðra en sjálfa sig.
Eldri trúarbrögðin segja, að helvíti sé kvalastaður fyrir Þa
vondu, en himnaríki sælubústaður hinna útvöldu. Húmanistar
segja, að þjáningin sé alstaðar eðlileg afleiðing af því a^
brjóta lög náttúrunnar, en það, að breyta rétt, hafi jafnan
hamingju og fögnuð í för með sér.
Þetta eru þá aðal-ágreiningsatriði húmanismans við rétt
trúnaðinn, en í raun og veru eru þetta að miklu leyti sörnu
ágreiningsatriðin og Únítarisminn og hin svonefnda nýja 9U^'
fræði eða nýhyggja (modernism) hafa haldið fram um nokkur
skeið. Sérkenni húmanismans væri ef til vill fólgin í Þ^1.’
hvað hann leggur sérstaka áherzlu á manninn, persónugudl
hans, velferð og hlutverk, en hafnar algerlega öllu yfirnáttur
legu. En eins og ég mun geta um síðar, liggur einmitt viðho
mjög svipað þessu til grundvallar fyrir þeirri nýhyggju, sern