Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1944, Side 28

Eimreiðin - 01.01.1944, Side 28
8 VIÐ WÓÐVEGINN rciMRETDTN skýri sem sannast og' réttast frá staðreyndum og leiðrétti rangfærslur, hvaðan sem koma og hver sem í hlut á. Vesturför biskups. Nýlega hefur Þjóðræknisfélag íslendinga í Vesturheimi minnzt 25 ára afmælis síns með liátíð, þar sem biskup íslands mætti fyrir hönd heimaþjóðarinnar. Félag þetta hefur verið hollur landkynnir í Vesturheimi, og á þessari hátíð voru það hin hljóðu kynni við það bezta úr íslenzkum arfi, sem fylltu hugina hollum metnaði og hjörtun fagnaðarblöndn- um trega. Meðvitundin um ný og traustari bönd „yfir höfin bráðu“, milli íslenzka stofnsins í austri og greinanna af honum, sem gróðursettar eru í vestri, gerði hátíð þessa að fagnaðarhátíð framtíðar jafnframt því, sem hún var hátíð minninganna. Allar fregnir styrkja þá trú, að för biskups vestur hafi orðið til heilla fyrir sam- vinnu og gagnkvæma vináttu íslendinga austan hafs og vestan. Biskup hefur síðan ferðast bæði um Kanada og Bandaríkin. Hefur þessum fulltrúa íslenzku þjóðarinnar verið tekið hvarvetna með hinni mestu alúð og sæmd, og för hans reynzt giftusamleg. Fyrsti sendiherra Sovjetríkjanna á íslandi. Enn hefur eitt voldugasta stórveldi heims veitt íslandi viðurkenningu með því að senda hingað fulltrúa sinn. -— Sunnudaginn 19. þ. m. tók ríkisstjóri á móti nýkomnum sendiherra Sovjetríkjanna á íslandi, Alexei Nikolaevich Krassilnikov. Fór móttökuathöfnin fram á ríkisstjórasetr- inu að Bessastöðum, þar sem sendiherrann afhenti umboðs- skjal sitt frá Æðsta ráði Sovjetríkjanna, undirskrifað af Kalinin, forseta ráðsins, og Molotov utanríkisráðherra. 1 komu sendiherrans hingað felst mikilvæg viðurkenning hins volduga Sovjetríkjasambands á fullveldi fslands. Pétur Benediktsson, sem verið hefur sendiherra íslands í London, hefur nú verið skipaður sendiherra fslands í Sovjetríkjun- um, með aðsetri í Moskva, en í hans stað hefur Stefán Þor- varðarson, áður fulltrúi í utanríkismálaráðuneytinu, tekið við sendiherrastarfinu í London.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.