Eimreiðin - 01.01.1944, Blaðsíða 35
KIMUKIt->lN
ÍSLAND 1943
15
samanburði á kolaverði, eins og það er nú, og gjakli því, er hús-
eigendum er ætlað að greiða fyrir uppliitun liúsa sinna frá lieita
vatninu á Reykjum, mun láta nærri að kostnaður verði sá sami
og áður. En sá mikli munur er þó hér á, að sama upphæð, sem
áður fór út úr landinu fyrir kolakyndingu í Reykjavík, gengur
nú í sameiginlegan sjóð til að greiða upp það mannvirki, sem
á að verða höfuðstaðmun ótæmandi hitagjafi um ókomnar aldir.
STJÓRN OG LÖGGJÖF. Stjórn sú, er ríkisstjóri setti í dezem-
her 1942, sat allt árið 1943 að völdum. Alþingi það, er sat að
störfum um áramótin 1942—’43 lauk ekki störfum fyrr en 14.
apríl 1943, og lét það þing eftir sig 59 lög og 38 þingsályktunar-
•illögur. Meðal laga þeirra, sem samþykkt voru á þessu þingi
má nefna: Stjórnarskipunarlög um breyting á stjórnarskrá kon-
ungsríkisins Islands, 18. maí 1920, sbr. stjórnarskipunarlög 24.
niarz 1934 og 1. sept. 1942, lög um innflutning og gjaldeyris-
meðferð, um stofnun liáskólabókavarðarembættis, um orlof, um
verðlag, um búfjártryggingar, lög um greiðslu íslenzkra afurða,
um baiui við töku Ijósmynda og meðferð ljósmyndavéla, um
húsaleigu, um Kennaraskóla Islands, um dýrtíðarráðstafanir.
Alþingi kom aftur saman síðari hluta ársins, og lauk það þing
störfum 17. dezember síðastl. Frá því þingi voru afgreidd 60
lög og 38 þingsályktunartillögur. Meðal laganna má nefna þessi:
Lög um refsing fyrir óheimila för inn á bannsvæði herstjórnar
°g óheimila dvöl þar, hafnarbótasjóð, um ábyrgð ríkissjóðs á
'.lóni, sem hlýzt af veru herliðs Bandaríkja Norður-Ameríku hér
;i landi, um dómsmálastörf, lögreglustjórn, gjaldheimtu o. fl. í
Reykj avík, um heilsuhæli fyrir drykkjumenn, um lilutatrygginga-
^élög, um ættaróðal og erfðaábúð. Annars eru 29 lög frá fyrra
þingi ársins og 23 frá því síðara breytingar á eldri lögum, og
er jiannig nær lielmingur allrar lagasetningar ársins lög um
breyting á lögum eða jafnvel lög um breyting á lögum urn breyt-
lng á lögum, en þessar sífelldu breytingar virðast benda á festu-
skort í lagasetningunni yfir böfuð. Alls voru afgreiddar 38 j»ings-
;,lyktunartillögur frá baustþinginu 1943.
SLYSFARIR. Á árinu drukknuðu 74 íslenzkir menn (1942: 62
tnenn) í gjó, vötnum og ám, auk jiess 5 menn af öðrum slys-