Eimreiðin - 01.01.1944, Blaðsíða 57
EIMREIÐIN HVERS A LTHOMAS] hardy að gjalda?
37
stórlega, að lesið hafi Tess á ensku), og varla munu margir telja
J)á miður dómbæra lionum um íslenzkt mál.
Það er að vonum, að T. G. þyki fróðlegur „inngangur“ minn
að þýðingunni. (Orðið „inngang“ hefur hann sjálfur lagt til, en
ekki ég; mér þykir það álappalegt, ef ekki aulalegt, í þessari
merkingu). Hann mun hafa nauðalítið um Hardy vitað áður en
hann las þenna „inngang“. Almennt mun mega segja, að Islend-
ingar viti það eitt um Hardy, sem ég hef sagt um hann.1) Þegar
hann lézt og erlendar símfregnir greindu frá láti hans, vissu ís-
lenzkir blaðamenn ekkert, hvað'a fugl þetta var og gátu því ekkert
nm hann sagt. Undantekning var Baldur Sveinsson, sem var vel
lesinn í enskum bókmenntum (enda — því má skjóta inn í —
alveg ósnortinn af Norðurlandadellunni). Bað liann mig þá skrifa
um Hardy í Vísi, og varð ég við þeim tilmælum. Greinarkorn
mitt (Vísir 16. 1. ’28.) var hið fyrsta, er ritað var á íslenzku um
þetta ofurmenni bókmenntanna, rithöfundinn, sem þá hafði um
hríð borið ægislijálm yfir alla samverkamenn sína um víða veröld.
Þrem árum síðar var ég beðinn að þýða einhverja smásögu á ís-
lenzku og skyldi sjálfur ráða valinu. Sneri ég þá ættarsögn þeirri,
er lengi liafði gengið í móðurætt skáldsins og hann loks færði
i letur og nefndi Afturkomu hertogans. Hún er stytzta sagan, sem
til er eftir Thomas Hardy. Árið 1933 var Einar H. Kvaran beðinn
nm þýðingu á smásögu til birtingar í Sögum frá ýmsum löndum.
Gerði liann það þá eftir tillögu minni að velja sögu eftir Hardy.
Með þeirri þýðingu varð liann fyrstur til að vekja atliygli Islend-
lnga á liinu mikla enska skáldi, og þegar á næsta ári kom Guð-
mundur Finnbogason með þýðingu á annarri smásögu, í sama
sagnasafni. En merkust þýðing í óbundnu máli áður en Tess
kom, var tvímælalaust þýðing lians í Skírni 1939 á fyrsta kapí-
tnlanum í The Return of the Native. Hann sýndi þá sem oftar,
honum er það ekki að skapi að ráða þar á garðinn, sem
l'ann er lægstur, því að þetta er ekki aðeins ein allra frægasta
nattúrulýsingin í bókmenntum Englendinga, lieldur og ein þeirra,
sem erfiðast er að þýða svo, að myndin máist ekki eða breytist.
En ef ég skrifaði fróðlega um T. H., þá liefur þó T. G. tekizt
1 i Meira að segja munu öll helztu rit Landsbókasafnsins um T. H. vera
bangað koinin fyrir niína tilstilli, og einu fágætu hókina eftir hann, sein
8afnið á, útvegaði ég þangað.