Eimreiðin - 01.01.1944, Blaðsíða 34
14
ÍSLAND 1943
EIJIltKJÐlN
firði var unnið að byggingu liafnargarða, cn enguin þeirra lokið.
Á Dalvík var lokið við 60 metra framlengingu hafnargarðs, sem
byrjað var á vorið 1932, en garður þessi er 185 nietra langur.
Hann er gerður úr grjóti með steyptri krónu og járnbentum
skjólvegg á ytri krónubrún. Ennfremur var bryggja áföst við
garðinn lengd um 60 metra. Kostnaður við þessi mannvirki
nemur um kr. 615.000,00. — Endurnýjuð var bæjarbryggjan á
Norðfirði að nokkru leyti og unnið að smíði á nýrri bátabryggju
í Vestmannaeyjum. Byrjað var með því að grafa geil inn í landið
vestur af Básaskersbryggju. Hefur verið grafið í sumar og liaust
með sanddælu Vestmannaeyjaliafnar og sandinum dælt alla leið
norður fyrir eiðið, um 450 metra vegalengd. Geilin er rúmlega
100 metra löng, 40 metra breið og 4—5 metra djúp um stór-
straumsfjöru. Meðfram geilarbakkanum er nú verið að reisa tré-
bryggju um 10 metra breiða, og á Iiún að verða um 100 metra
löng. Sandbakkinn er treystur með plankaþili neðst, en steyptum
fláa fyrir ofan fjöruborð. Lokið var að mestu lengingu þeirri á
hafnargarðinum í Keflavík, sem byrjað var á 1942. Er lengingin
40 metrar með 10 metra breidd. Kostnaður við þessa framkvæmd
mun alls verða um 1200 þús. kr. Að framlialdsbyggingu liafnar-
garðsins í Hafnarfirði var unnið á árinu, en því verki er enn ekki
nærri lokið.
Vitabyggingar. Lítill innsiglingarviti var reistur fyrir Olafsvík
og Jjóstæki sett í liann, ennfremur í vita þann, sem reistur var
1942 við Grundarfjörð. Reistur var viti á Selskeri við vestan-
verðan Húnaflóa, 16,5 mtr. á liæð, og allstór viti á Háanesi við
sunnanverðan Patreksfjörð, um 14 mtr. á liæð, og liefur firmað
0. Jóliannesson á Vatneyri gefið þaun síðarnefnda til minningar
um Ólaf Jóliannesson konsúl og útgerðarmann þar. Ljóstæki eru
enn ófengin í báða þessa síðasttöldu vita. Loks liefiir verið liaf-
in bygging á tveimur vitum, á Svartnesi utan við Bakkafjörð og
á Akranesi.
Hitaveita Reykjavíkur tók til starfa í lok ársins 1943, þó ekki
þá fullgerð. En að kvöldi 31. dez. 1943 liöfðu 1303 luis verið
tengd liitaveitukerfinu og lilotið upphitun frá því. Þannig er
að rætast sá draumur, að orkulindir livera- og laugavatnsins J
landinu skuli beizlaðar og notaðar í þágu landsmanna. En þser
orkulindir munu því nær ótæinandi. Samkvæmt lauslegum