Eimreiðin - 01.09.1962, Blaðsíða 89
EIMREIÐIN
265
Ingatími í andlegu lífi íslendinga.
Ein meginorsök þess voru vaxandi
uhrif raunsæisstefnunnar á skáld-
skap og hugsun, einkum hinna
'ngri manna.
Grímur Thomsen mun hafa haft
^argt að athuga við landa sína á
efri árum. í grein hans um Pétur
hétursson biskup látinn verður
ekki annað séð en hann sé beinlín-
ls að ganga í berhögg við hræsni og
'h'ikjuskap. Þessarar óánægju kenn-
Ir einnig í kvæðum hans, svo sem
1 lokaerindi kvæðisins um Svein
^álsson landlækni. í kvæðinu
''hrandakirkja gerir hann saman-
hurð á fortíð og nútíð og segir:
„Þá var tíðska orð og eið
Allan vel að halda . ..“
Samtíðina skorti hreinskilni,
hjörfung og drengskap þann, er
e,nkenndi beztu menn gullaldar-
lnnar. En Grímur var vitrari mað-
Ur en svo, að hann vissi ekki, að
Prédikanir og karlanöldur mundu
hér lítt fá orkað og verða til óprýði
'háldskapnum, þótt hann fengi
ehki stillt sig í kvæðinu um Svein
fíálsson.
Eins og skáldið Þorsteinn Erl-
'þgson bendir á í minningargrein
Slnni um Grím í Bjarka, munu
Ulnrg söguljóð Gríms beinlínis ort
1 þeim tilgangi að sýna þjóðinni
Jyrirmyndirnar fornu og þá mann-
°sti, er hann vildi, að hún varð-
'e,tti. í hópi þessara fornu fyrir-
^tynda skipar Halldór Snorrason
' eglegan sess.
h
E-væðið Halldór Snorrason mun
ehki hafa birzt á prenti, fyrr en í
Kaupmannahafnarútgáfunni af
ljóðmælum Grims Thomsens 1895.
Grírnur Thomsen andaðist 27. nóv-
ember 1896. Var kvæðið því aðeins
prentað einu sinni um hans daga.
Um aldur þessa kvæðis verður
ekkert fullyrt með vissu, enda
munu engar upplýsingar til um
það atriði frá höfundinum fremur
en fjölmörg önnur af kvæðum hans.
Þetta kvæði er ekki ólíkt því, að
það hefði verið alllengi í smíðum,
jafnvel ekki verið ort í einu lagi.
Ólíklegt virðist þó, að Jtað sé ort
fyrir 1880, Jtar sem það er ekki
prentað í Ljóðmælum, er út komu
í Reykjavík það ár.
Andrés Björnsson telur í formála
fyrir úrvalsljóðum Gríms, er Menn-
ingarsjóður gaf út 1946, allar líkur
til þess, að kvæðið sé eldra en Hem-
ings flokkur Áslákssonar, sem birt-
ist fyrst á prenti í Andvara 1885,
enda má telja, að sú lýsing, sem þar
er gefin á Halldóri, sé viðbót við
Jietta kvæði. Samkvæmt Jæssu gæti
J)að verið ort á árunum frá 1880—
1885.
Ljóðabók Gríms frá 1880 var
fremur fálega tekið og hlaut harða
dóma. Má J)ar einkum nefna rit-
dóm Jóns Ólafssonar í Skuld 1881.
(Dómur Eiríks Magnússonar birtist
nokkrum árum síðar). Jón Ólafsson
réðs harkalega á form Gríms, eink-
um rím og stuðlasetningu. Sum
kvæði úr bókinni, sem nú eru
löngu orðin alþjóðareign, t. d.
Landslag, kallar Jón þýfi. Hann
neitar Grími þó ekki með öllu um
skáldgáfu, en telur hann algerlega
bresta hagmælsku og ræður honum