Eimreiðin - 01.09.1966, Blaðsíða 22
202
eimreiðin
í sveitinni eru starfandi tveir heimavistarskólar, héraðsskólinn í
Reykholti og barnaskólinn á Kleppjárnsreykjum. í Reykholt var
kominn kennari, sem þótti mjög vænlegur til stuðnings við félagið,
ef það réðist í að koma upp leikriti, Jónas Árnason frá Múla,
kunnur áhuga- og fjörmaður, mælskur á mannfundum, vinsæll og
stjórnsamur kennari, listfegur á tóna og snjall sögumaður í riti —
og loks það, sem var — eins og nú stóð á — kóróna allra hans kosta:
með bróður sínum höfundur tveggja mjög vinsælla og alþýðlegra
heilkvölds gamanleikja, sem leiknir ltöfðu verið sinn í ltvoru aðal-
leikhúsi þjóðarinnar við mikla aðsókn og alntennar vinsældir. . • •
Þá höfðu menn hlerað, að skólastjórinn nýi á Kleppjárnsreykjum,
Jón Kristinsson, hefði mikinn áhuga á leiklist, væri listfengur teikn-
ari og hefði reynzt hjá áhugaleikendum vestur í Fjörðum hagur og
smekkvís á málun leiktjalda og á leikgervi og andlitsförðun. Enn-
fremur vissu menn, að Sveinn Víkingur, sem kennt hafði í barna-
skólanum, en nú var samstarfsmaður Jónasar í Reykholti, hafði
mikinn áhuga á bókmenntum og leiklist og var hagleiksmaður i
hvívetna.
Nú bar stjórn ungmennafélagsins saman ráð sín um verkefni, sem
gætu helzt allt í senn: blásið í félagið varanlegu lífi og aukið þvi
vinsældir og álit, veitt félagsmönnum gagnlega þjálfun í menningar-
legu starfi, skemmt eldri sem yngri og ofan á allt þetta eflt fjárhag
félagsins og alla getu til lífrænna og veigameira starfs en það hafði
haft með höndum á undanförnum árum. Meðal stjórnenda félags-
ins eru þrír fjölhæfir og áhugasamir menn á bezta skeiði. Formað-
ur þess er Kristján húsgagnasmíðameistari Benediktsson í Víðigerði,
að sjálfsögðu maður hagur, en einnig smekkvís, og ritari er Bjarni
bóndi Guðráðsson í Nesi, mjög virkur um stjórn og starfrækslu
bókasafns félagsins, en einnig þúsundþjalasmiður og kunnur og vin-
sæll sem hjálparhella sveitunga sinna, þegar á pjölnm hans þarf að
halda. Þriðji maðurinn er Andrés bóndi í Deildartungu, sem löng-
um hefur mikið starfað í félaginu og þá einkum sem leikstjóri og
leikari, enda hefur hann aflað sér nokkurrar tilsagnar í þessum efn-
um og leitað sér um þau fræðslu af bókum. Stjórninni kom saman
um að koma á svið leikriti — og einnig um það, að ekki væri von
til að ná áðurnefndum tilgangi, nema leikritið tæki heilt kvöld
og væri líklegt til verulegra vinsælda. Og bezt fannst þeim það soma
félaginu, að leikritið væri íslenzkt og þjóðlegt. Svo varð þá Skugga-
Sveinn gamli fyrir valinu.