Eimreiðin - 01.09.1966, Blaðsíða 36
216
eimreiðin
gamli maðurinn var langt kom-
inn með að smíða. Handa ein-
hverjum Grími, sem átti að vera
þessi úrvalsskipstjóri. Hver gat
vitað, hvernig skipstjóri hann
væri, maður, sem hafði víst aldrei
snert á skipi?
Skip hafði mig lengi langað til
að eignast, það fengust stundum
skip í búðinni hjá honum Sig-
mundi. Jafnvel fallegri og stærri
en þetta, en mamma sagði allt-
af, að það væru ekki til peningar
til slíks, ef ég bað hana að gefa
mér fyrir einu skipi. Og sama
sagan með pabba. Þau voru svo
dýr. Sjálfsagt mundu svona skip
vera dýr líka, þótt þau væru
kannski ekki eins fín.
Ég spurði mjög hikandi:
Hvað kosta annars svona skip?
Þar komstu með það, drengur
minn. Ef ég á að segja þér eins
og er, þá hef ég oft verið að
hugsa um þetta sjálfur, en ég
held bara, að það sé erfitt að
reikna út, hvað þau kosta. En
svo mikið er víst, að þau eru
mikils virði. Ef ég ætti að reikna
það til peninga, þá held ég bara
ég yrði blankur í fyrsta skipti á
ævinni.
Hvað borgar Grímur fyrir
þetta skip?
Ja, það er eins og ég segi, þú
ert spurull, góðurinn. Grímur
borgar mér vel fyrir þetta skip,
get ég sagt þér, mjög vel. En
hann hefur beðið mig að gefa
það ekki upp, það er leyndarmál,
út af skattinum, drengur minn,
skilurðu mig?
Og þetta varð ég að reyna að
skilja. Ég varð að sýna gamla
manninum það ótvírætt, að þótt
Grímur stæði mér kannski fram-
ar um skipstjórn, sem væri þó
ósannað mál enn, þá væri ekki
endilega víst, að hann hefði
meira vit á skattamálum en ég.
Ég varð að skilja það, sem Grím-
ur skildi, þó ekki væri nema á
einu sviði.
Þess vegna jánkaði ég.
Skattinum, já ég skil, svaraði
ég-
Gamli maðurinn fékk hósta-
kviðu, að þessu sinni styttri en
áður.
Þú átt náttúrlega skip? sagði
hann svo eftir smástund.
Nei.
Jæja, áttu ekki skip ennþá.
Hvað ertu gamall?
Átta ára.
Átta ára, já mig grunaði það.
Og átt ekkert skip enn. Ekki er
ástandið gott. Þau fást nú samt
stundum hérna í búðinni hja
honum Sigmundi, er það ekki?
Jú, en þau eru svo dýr, ég hef
ekki efni á að kaupa þau.
Já, þau kosta víst talsvert Hka
þar. Það kostar víst allt eitthvað,
einhvers staðar og einhvern tíma.
Það held ég. Jafnvel andrúms-
loftið kostar heymæði. O-ja, og