Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1966, Blaðsíða 48

Eimreiðin - 01.09.1966, Blaðsíða 48
228 eimreiðin tilhugsun að örlög okkar kunni að vera ráðin mörgum áratugum áður en einkennin koma í ljós.“ Þetta skrifar þessi kona í bók sinni, sem hún ritaði eftir að hún hafði gert sér ljóst, að fjölmörg dæini eru orðin um það í heiminum, að af eitri, sem stráð var til að eyða einhverjum ákveðnum meindýrum eða illgresi, höfðu aðrar dýra- tegundir beðið bana og stundum líf eyðst á stóru svæði. Og það, sem enn verra er, að efni þessi berast frá jurtum til dýra og til mannsins með fæðunni, og safnast stundum saman fyrir í jarðvegi eða í vefjum dýra og manna, og hefur jafnvel áhrif á ófædda, án þess að ráð séu til að verjast því. Eftir að Rachel Carson uppgötvaði fyrst, að fuglarnir voru horfnir á sumardvalarstað hennar og fékk að vita, að þeir hefðu dáið af eitrun, þegar úðað var skordýraeitri til að eyða meindýrum af trjánum, safnaði hún upplýsingum um ótal svipuð dæmi í Banda- ríkjunum. Hún hefur í bók sinni fjölmargar frásagnir af því, hvernig DDT eða annað skordýraeitur, sem stráð var í það sem kallað var hæfilegum skömmtum til eyðingar meindýrum, á nytjajurtir eða illgresi á ökrum, hvernig það barst gegnum jarðveginn, ánamaðk- ana og með þeim til fuglanna eða þá með jarðvatninu í læki og ar og drap fiska þar í stórum stíl. Eitrið safnaðist t. d. gjarnan fyrir í fituvefjum og við eyðingu á þeim uppleystist svo stór skammtur, að hann varð banvænn. Einnig voru dæmi um, að slíkt eitur hefði gert dýraflokka ófrjóa, án þess að drepa sjálfa einstaklingana. Þessi bók varð til þess, að óhug sló á fólk í Bandaríkjunum, þar sem hin nýju efni höfðu hvað mest verið notuð. Rannsóknarnefndu voru skipaðar, og farið var að setja meiri hömlur á dreifingu eitur- lyfja. Þó trúa menn ekki enn. Eða einblína bara oft á sitt eigi® vandamál, sem við þeim blasir hverju sinni. Ávaxtaræktandi sel aðeins bjölluna, sem eyðileggur fyrir honum uppskeruna, og vill tortíma henni með þeim lyfjum, sem tiltækileg eru. Og hvað kem- ur það öðrurn við, hvað hann setur á sitt eigið land? Auk þess hefm hann enga trú á því, að þetta geti valdið svo miklu tjóni annars staðar. Hann veit ekki frekar en aðrir hvað hann hefur í hönd unum. Jafnvel vísindamennirnir, sem framleiddu eitruðu lyt111 handa honum, gátu ekki vitað um verkanir þeirra við hinar ýmsU aðstæður í náttúrunni. Þeir vissu ekki hvað mundi gerast, þe8ar þau færu frá dýri til dýrs og óskaðlegu skammtarnir söfnuðust fy111 í moldinni eða vatninu. Og hver veit, hvar allur sá eiturforði ei, sem þegar er búið að dreifa, hversu víða hann hefur borizt og hvai
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.