Eimreiðin - 01.09.1966, Blaðsíða 55
DULRÆNAR FRASAGNIR
eftir
Elínborgu Lárusdóttur.
Fi'ú Elinborg Lárusdóttir skáldkona
varð 75 ára 12. nóvember siðastliðinn.
Meðal margra bóka, sem hún hefur
skrifað, fjalla nokkrar um dulrœn
efni, og hefur hún skráð þœr eftir
frásögn fólks, sem gætt er dulreenum
hœfileikum. En sjálf hefur Elinborg
einnig orðið fyrir ýmis konar reynslu
af þessu tagi, cins og fram kemur í
meðfylgjandi þáttum.
Hvernig opnaðist hurðin?
Þegar við hjónin komum að
Mosfelli í Grímsnesi árið 1922
var þar gamall bær og mjög illa
kominn. Þegar kom inn í and-
dyrið var hurð til hægri inn í
dagstofuna. Inn af dagstofnnni
var lítið herbergi, sem var not-
að sem svefnherbergi handa gest-
Urn- Beint á móti dyrum stof-
unnar og til vinstri handar, er
tnn var gengið, voru dyr, sem
lágu inn í lítið herbergi, sem
Prestur hafði aðsetur í og notaði
sem skrifstofu. Innst inn í gang-
'num og til hægri handar lá stigi
UPP á loftið, en uppi var bað-
stofan. Var hún afþiljuð í báða
enda og sváfum við hjónin í
suðurhúsinu, sem kallað var.
Vinnufólkið svaf í miðbaðstofu.
Urðu allir, sem gengu um suður-
húsið og norðurhúsið, að ganga
um miðbaðstofu, en þar voru
fjögur rúm. Innst í anddyrinu
og alveg fast við stigann var af-
þiljað lítið skot og var þar lítil
eldavél og lítið borð undir
glugga, sem ætlað var til að
leggja frá sér á. Þarna var svo
lítið gólfrúm, að varla var hægt
að snúa sér við. Þetta var kallað
„Litla eldhúsið“ og var eldað
þarna á vetrum, er fólkið var
fátt. En beint á móti stiganum
og til vinstri handar var gengið
inn í annað eldhús miklu stærra.