Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1966, Blaðsíða 37

Eimreiðin - 01.09.1966, Blaðsíða 37
SKIPTAPI 217 gamli maðurinn dæsti mæðu- lega. Hvað áttu nú mikla peninga, góði minn? Eg kunni varla að segja frá því, hvað það var skammarlega lítið. Ég átti tvær krónur og fimmtíu aura heima, en mamma geymdi þær fyrir mig. Ég mátti ekki eyða þeim fyrr en á jólun- um, þá átti ég að kaupa fyrir þasr kort og jólagjafir handa systkinum mínum. Svo að þær voru ekki einu sinni lausar til raðstöfunar. Svo ekki væri nú nunnzt á tuttugu og fimm krón- nrnar, sem voru í bókinni minni í sparisjóðnum. Það var fryst fé. En ekki gat ég viðurkennt, að ég ætti enga peninga handbæra. hefði ég enga heimild til að ganga að mönnum, ávarpa þá og spyrja, hvar þeir ynnu. Ég á lítið. Eitthvað eina eða tvær krónur. En ég fæ nú meiri peninga bráðum. Ég á peninga hjá manni. Og hann hefur lofað að borga þá mjög fljótlega. ^Eo til, bara orðinn lánveit- andi átta ára gamall, sagði gamli naaðurinn, og það var aðdáunar- lu'eimur í röddinni. Þú ert ekk- ert blávatn, laxi. Þú verður ein- hvern tíma maður með mönn- Uni, það finn ég á mér. Ég hef víst orðið hálfvand- r;eðalegur yfir þessu hóli, og nú þögðum við um stund. Svo segir gamli maðurinn varfærnislega, og það var bissnisshljóð í rödd- inni: Hvað mundirðu nú vilja borga fyrir svona skip? Hverju átti ég nú að svara? Auðvitað væri ég til með að borga heilmikið fyrir svona skip. En hvað var að tala um það, þegar ég hafði ekki peningana. Og þetta með peningainneign mína hjá þessum ónafngreinda manni var nokkuð, sem ég sjálf- ur gat að minnsta kosti ekki tek- ið mjög alvarlega. Og þótt mér tækist kannski að krafsa saman eina til tvær krónur fyrir sendi- ferðir á löngum tíma, hvað mundi Jrað stoða? Skipin hjá Sigmundi kaupmanni höfðu víst ekki kostað undir fimm krónum. Þrjár krónur og fimmtíu aurar til fjórar krónur hlaut að vera lágmarksgreiðsla fyrir svona skip. En nú sem ég var hálfflæktur í samningagerð við þennan reynda skipasmið, hverju átti ég þá að svara? Helzt yrði ég að láta hann leggja fram ákveðið verð- tilboð, sem ég gæti þá eftir atvik- um gengið frá, ef ég teldi mér ofviða að afla mér svo mikils fjár. Hvað þarftu að fá fyrir svona skip? spurði ég og reyndi að hleypa karhnannlegu kæruleysi í röddina. Gamli maðurinn brosti. Svona spyr maður ekki í við- skiptalífinu, drengur minn, sagði hann svo. Hvað ég þarf? Fyrst af
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.