Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1966, Page 52

Eimreiðin - 01.09.1966, Page 52
232 EIMREIÐIN sem var að ræða um baðstrendurnar og sagði frá því, að frárennsli verksmiðjanna og klóök frá bæjum og sumarhúsum væru nú að verða svo þétt meðfram allri strönd Danmerkur, að baðgestir eigi á hættu að fá í sig hvers kyns bakteríur og óhreinindi. Víðar en þar, sem fólk er varað við að baða sig í sjónum, inniheldur vatnið magn af gerlum, sem er langtum meira en heilbrigðisyfirvöldin geta sætt sig við. Danmörk er orðin mjög þéttbýlt land og þetta mál hefur ekki verið athugað í tíma. Nú kostar hundruð milljóna danskra króna að bæta úr. Kaupmannahafnarborg er með bollaleggingar um hreinsun á Eyrarsundi í næsta nágrenni við borgina og er áætlaður kostnaður 300 millj. danskra króna, ef notuð verður svokölluð bio- logísk hreinsun í stað mekanískrar, sem talin er miklu lélegri. Að vísu fellur mikið vatn til sjávar á íslandi. En Danir héldu líka, að sízt yrði of lítið af vatni og sjó hjá þeim. Þeir mundu ekki hafa verið neyddir út í nærri óyfirstíganlega dýrar framkvæmdir við að hreinsa vatnið, ef þeir hefðu strax sett sér strangar reglur um að leiða klóökin nógu langt út og um eyðingu úrgangsefna frá verk- smiðjum, áður en þær risu í verulegum mæli. Ættum við nú ekki að láta okkur þetta að kenningu verða? Hvað skyldu vera margu' blettir með allri strandlengjunni kringum Seltjarnarnesið og Reykja- vík, þar sem klóak ekki flytur óhreinindi út í fjöruborðið? Og hvernig verður með frárennsli frá verksmiðjunum, nú þegar þær eru að koma til sögunnar hér á landi? Reyndar þurfum við ekki að tala um vatnið eða höfin, til að finnast óhreinindin vágestir. Eftir að hafa ferðazt um landið á sumt- in, getur það ekki farið fram hjá neinum, að þegar er farið að bóla á því, sem á eftir að verða vandamál. í framtíðinni — ég veit ekki, hvað verður langt þangað til — ber fyrir augu meðfram öllum veg- um skrautlega sjón: hárauðar mjólkurhyrnur, ryðgular dósir og plastpoka með hvers kyns innihaldi. Þessar stórkostlega þægiRgu umbúðir nútímans eyðast nefnilega ekki eða ákaflega seint. I næst- um hverjum hvammi meðfram fjölförnum leiðum skarta þær. Stund- um áberandi og án þéss að fara í felur, en stundum gægjast þ;er fram undan steinum eða í gjótum, ef sérstaklega hirðusamt fólk hefur verið með þær. Það hefur safnað í þær í bílum sínum, 1 tjaldinu eða þarna í lautinni, meðan borðað var og drukkið. Svo hefur húsbóndinn pakkað þessu vel saman og stungið undir stexn- Og það gægist útundan, annað hvort strax eða seinna. Það er að vísu skárra en að henda plastpokanum lausum, en næstum verra en
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.