Eimreiðin - 01.05.1967, Blaðsíða 39
Sigurður Ólason hrl.:
Fjárhagsforsendur Árnasafns
og fleiri athugasemdir
út af bæklingi próf.
dr. Westergárd-Nielsen:
,,Hvem var Arne
Magnussons formand?“
I. kafli.
Próf. dr. Westergárd-Nielsen, formaður Árnasafnsnefndar í Kaup-
mannahöfn, hefur ekki fyrir löngu gefið út bækling (,,Hvem var Arne
Magnussons íormand?“ Árh. 1966), sem fjallar um konu Árna Magnús-
sonar, hins fræga handritasafnara, hverrar ættar hún hafi verið, hver
hafi verið fyrri maður hennar o. s. frv., og því næst um hjónaband
þeirra Á. M., og loks (óbeint) um fjárhagslegar forsendur og uppruna
Árnasafns.
Það sýnist nú í fljótu bragði ekki sérlega merkilegt rannsóknarefni
að grafast fyrir um fortíð jjessarar löngu liðnu konu, sem maður skyldi
hakla, að flestum mætti á sama standa nokkuð svo, hvoru megin
hryggjar lægi úr þessu. Það er, líkt og Árni Pálsson komst að orði, „illa
farið með góðan þorsta“, þegar kunnur danskur vísinda- og háskólamað-
t>r fórnar dýrmætum tíma sínum í slíka rannsókn. Reyndar virðast dansk-
ir háskólamenn ekki alltaf hafa látið sér títt um þessa konu, a. m. k.
nieðan hún enn var lífs, svo sem þegar þeir ruddust inn í íbúðina sama
morgun og maður hennar gaf upp öndina, og höfðu á brott með sér