Eimreiðin - 01.05.1967, Blaðsíða 14
102
EIMREIÐÍA
hún byggist á blessunarríkustu
uppfinningu mannsins, sigrin-
um yfir öllum þeirn smitandi
sjúkdómum sem þjáðu mann
kynið fyrr á tímum. Áður varð
maðurinn að berjast fyrir lífi
sínu við mjög erfið skilyrði. Þá
var nauðsynleg mjög há fæðing-
artala og fólksfjölgun bar vitni
um framfarir. Nú þegar fólks-
fjöldi í heiminum tvöfaldast
með einni kynslóð eða enn fljót-
ar, verðum við að ltreyta mati
okkar á róttækan hátt. Við get-
um ekki og viljum ekki varpa
frá okkur vísindasigrum nútíma-
læknisfræði, en fólksfjölgunin,
sem eitt sinn var ávinningur okk-
ar, felur nú í sér hættuna fyrir
okkur. Hún eykur aðrar hættur
eins og jarðvegseyðingu, meng-
un andrúmsloftsins og eyðingu
annarra náttúruauðæfa. Ef við
stönzum ekki bráðlega fólks-
fjölgunina, munu afkomendur
okkar fá vesæla og gæðum rúna
jörð til ábúðar.
Það er ekki til nein auðveld
eða fljótvirk lausn á þessum
vanda. Við höfum geysilega þörf
fyrir nýjar, einfaldari og örugg-
ari aðferðir við getnaðarvarnir.
Síðan er einnig nauðsynlegt að
sannfæra þúsundir milljóna af
fólki um víða veröld um nauð-
syn þess að nota þær. Þessu fylgja
stórkostleg félagsleg og sálfræði-
leg vandamál. En ég held að
hægt sé að korna til leiðar þeim
breytingum sem nauðsynlegar
eru.
Þörfin er brýn og fresturinn
er stuttur.
Prófessor Bernard Lovell,
stjörnufræðingur, forstöðumað-
ur stjörnuathugunarstöðvarinn-
ar í Jordell Banks:
Það er sjaldgæf kaldhæðni ör-
laganna að einn hinna stærstu
sigra í nútíma rannsóknum og
tækni, þ. e. a. .s. geta mannsins
að senda eldflaugar út frá yfir-
borði jarðar, skuli hafa stofnað
okkur í mikla hættu, þar sem
við getum nú eitrað andrúms-
loftið og valdið víðtæku tjóni
sem gæti komið í veg fyrir frek-
ari könnun geimsins.
Þetta vandamál hefur margar
hliðar. Við stjörnufræðingarnir
höfum fyrst og fremst haft
áhyggjur af ýmsum tilraunum til
að skapa betri fjarskiptasam-
bönd. Mergð hluta, þ. á. m. þús-
undir milljóna af koparnálum,
hafa verið send á braut hátt yfir
yfirborði jarðar. Sú tilraun vakti
með okkur mikinn ugg, einkum
vegna þess að verði leyft að
halda áfram slíkum tilraunum
án alþjóðlegs eftirlits, geta
stjarnfræðilegar athuganir og
athuganir á útvarpsbylgjum úr
geimnum orðið margfalt erfið-
ari.