Eimreiðin - 01.05.1967, Síða 12
Framtíð mannsins og ábyrgð hans
Hugleiðingar nokkurra vísindamanna
Hér svara átta kunnir vísindamenn spurningunni um það, hvert af
hinum nýju og áður óþekktu valdatækjum, sem vísindi og tækni liafa
fengið mannkyninu í hendur, þeir telji liættulegast þróun jarðlífsins.
Svör þessara vísindamanna voru fyrst flutt í sænska útvarpið árið 1964,
og í vetur flutti Vésteinn Ólason, stud. mag. þessa athyglisverðu þætti
í Ríkisútvarpið hér. Eimreiðin hefur fyrir milligöngu sænska útvarps-
ins fengið leyfi viðkomandi vísindamanna til þess að birta ummæli
þeirra.
Vísindi og tækni hafa fengið
manninum ný og áður óþekkt
valdatæki í hendur. Hvert þess-
ara valdatækja teljið þér hættu-
legast?
Þessi spurning var lögð fyrir
marga vísindamenn víða um
heim, og nokkrir þeirra voru svo
vinsamlegir að svara.
Prófessor J. D. Bernal, eðlis-
fræðingur við Lundúnaháskóla:
Ef litið er hlutlægt á málið,
kemur í ljós að vísindunum er
nú, fræðilega séð, kleift að bægja
frá flestum óhöppum og áhyggj-
um sem þjáð liafa manninn á
öllum öldum. En í raun liefur
þetta ekki tekizt. Nú eru meiri
þjáningar, meiri órói, meira
hungur í lieiminum en nokkru
sinni fyrr. Þetta er ekki sök vís-
indanna. Það stafar af misnotk-
un vísindanna, eða því að þau
hafa alls ekki verið notuð. Lít-
um skýrasta dæmið: Aldrei í
sögu mannsins hefur fólk lifað
í svo stöðugum ótta við það að
mannkyni öllu verði útrýmt.
Ekki er þetta vísindunum að
kenna. Útrýmingartækin eru
vísindaleg. Orsakirnar til notk-
unar þeirra eru ágirnd og öfund-
sýki, sem hafa verið til á öllum
tímum. En áður fyrr þekktu
menn ekki aðferðir til að valda
nema takmörkuðu tjóni. Stríð
voru manninum ekki óbærileg.
Þau ollu mjög miklum þjáning-
um, en útrýmdu engu. Lönd
gátu náð sér eftir þau. En nú
höfum við atómsprengjur, og
enginn getur náð sér eftir þær.
Þetta liggur helzt í augum uppi.
Næst er að benda á öll þau
dæmi, þar sem hinir nýju orku-
gjafar eru notaðir heimskulega
eða alls ekki. Við vitum að í
heiminum er hægt að framleiða