Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 62

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 62
INNTAK SOGUKENNSLU áherslu á fjölþjóðleg þemu svo sem víkingatíma, iðnbyltingu, þróun mannréttinda og uppkomu þjóðríkja. Enn fremur að hafa samanburð stöðugt í huga og skoða menningarstrauma milli landa (Mutual Understanding ... 1995). Alyktanir Evrópusinna um sögukennslu bera þess merki í seinni tíð að þeir geri sér grein fyrir mikilvægi þjóðarviðmiðs þó að þeir hafi áhuga á að draga fram sameiginlegan Evrópuarf. Sögukennarar í Evrópu, sem hafa með sér samtök, virð- ast sama sinnis. Það er ef til vill lýsandi að höfuðefni ráðstefnu félags þeirra árið 1999 verður (EUROCLIO 1998); „Menningararfur og þjóðarímynd - lykilhugtök sögunáms?" Sagan öll? Þó að eitthvert (síbreytilegt) samkomulag takist um söguinntak í rými er ekki hálf sagan sögð því enn verður spurt: En hvaða saga? Draumurinn um sögu í líki sam- felldrar frásagnar með skýrum hetjum og sjálfstæðisbaráttu þjóðar að leiðarljósi er horfinn - ef hann hefur einhvern tíma verið til (Iggers 1997:143): Hugmyndinni um einingu sögunnar var boðinn byrginn tiltölulega snemma á tuttugustu öld ... Það fór einnig í vöxt að ákveðnir hópar, sem sagnfræðingar höfðu hunsað, heimtuðu stað í sögunni. Sjónarhorn sögunnar var þannig stækkað svo að það spannaði ekki aðeins valdamiðstöðvarnar heldur útjaðra samfélaganna einnig. Þannig varð nærsaga10 til og hugmyndin um margfalda sögu. í stað þess að sjá einn samfelldan þráð eru nú komnar margþættar frásagnir af tilvistar- reynslu mismunandi hópa. Fulltrúar ýmissa sjónarmiða banka á dyr sögukennslunnar og halda fram viðhorf- um sínum. Þjóðernið vill ekki láta hlut sinn enda almennt hátt skrifað. Líklega hafa stjórnmálamenn þó mestan áhuga á því þar sem þeir starfa einkum á grundvelli þjóðarheilda. Sögudeilurnar á Alþingi íslendinga 1983-1984 sýndu þetta glöggt. Femínistar benda á „bágan hlut kvenna í þeim kennslubókum sem notaðar hafa verið til sögukennslu í grunn- og framhaldsskólum frá upphafi slíkrar kennslu og fram á okkar daga" (Þorgerður H. Þorvaldsdóttir 1996:273). Nærsaga (einsaga) og (ný) menningarsaga hafa opnað leiðir til að tengja „litla heiminn" við hinn stóra - að blása lífi í hagtölur og almennar lýsingar (Einsaga - ólíkar leiðir 1998, Agnes Arn- órsdóttir og Helgi Þorláksson 1998). Saga vísinda og tækni opnar nýja sýn á þróun samfélaga. Þannig mætti lengi telja. Margar tilraunir hafa verið gerðar til að búa til almenna mælikvarða sem hægt er að bregða á yfirþyrmandi magn upplýsinga um liðna tíð (Partington 1980, von Borries 1995). Einn sá algengasti er að velja efni sem varðar og útskýrir nútímann, sýnir af hvaða rótum hann er runninn. Áherslur í nútíð verða iðulega ávísun á inntak sem tekið er fyrir í sögukennslu. Nokkra áhrifaþætti má nefna sem dæmi: - Styrkari staða kvenna í nútíðarsamfélagi eflir kröfu um kvenna- eða kynjasögu. 10 Nærsaga er hér notað um heitið „míkrósaga" sem einnig hefur verið kölluð einsaga á íslensku. Hvorugt heitið er þó fullnægjandi lausn. 60
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.