Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Síða 76

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Síða 76
ANIMUS O G SKUGGI HELGU KARLSDÓTTUR - segir að hún megi aldrei láta eldinn deyja, því þá sje engan eld aðfá, - það sje svo langt til bæja. Það væri lítill vegur að ná í eld í helli sem ekki sje allfjarri - hjerna inn með fjallshlíðinni, - en það sje mesta hætta, því í þeim helli búi þrír ferlegir risar, og sje best að komast ekki í kast við þá, - og þó sje kosturinn sá einn, að leita þangað, efsvo illa tækist til að eldurinn deyi, - því hitt sje ógerningur, að komast með eldfrá mannabygðum. Móðirin veit að það er lífsnauðsyn fyrir Helgu að ráða yfir logandi eldi en jafnframt er henni Ijóst að sú hætta er yfirvofandi að það lánist ekki. Móðirin gerir sér grein fyrir því að fari þannig að eldurinn slokkni þá eigi Helga ekki nema þann kost einan að leita í helli risanna að eldi. Höfuðskepnurnar eldur og vatn eru að því er virðist frá fornu fari kynbundin náttúruöfl. Bandaríski bókmenntafræðingurinn Ruth B. Bottigheimer bendir í rannsókn sinni á Grimmsævintýrum á að eldurinn tilheyri karlmanninum og hann geti ógnað stúlkunni á sama hátt og vatnið geti reynst drengnum hættulegt (1987:29-30). I upphafi ævintýrsins um Gullintönnu eru báðir foreldrar Helgu á lífi sem bendir til þess að jafnvægi ríki á milli karllegra og kvenlegra þátta. Þess er getið í innganginum að fátt beri til tíðinda fyrr en karlinn tekur sótt og andast. Eftir það hokra þær mæðgur áfram einar þar til kerling fellur einnig frá. Að mati Singers felur fornmyndin animus í sér duldar karllegar hliðar í konunni á sama hátt og anima felur í sér duldar kvenlegar hliðar í karlmanninum. Þegar konunni tekst að taka animus til sín og gera hann að meðvituðum hluta í sálarlífi sínu veitir hann þeirri orku sem áður var bæld í skapandi og virka viðleitni. Af öllu dulvituðu efni telur Singer erfiðast að innlima animu eða animus. Þegar hins vegar tekst að losa einstaklinginn undan valdi ómeðvitaðra karllegra eða kvenlegra þátta og gera þá meðvitaða á sér stað það sem kallað hefur verið hið innra brúðkaup (Singer 1995:183-185, 229-230). í upphafi ævintýrsins stendur faðirinn fyrir karl- leikann, eða animus, í Helgu. Þegar faðirinn er úr sögunni og hinnar reynsluríku móður sem haldið getur lífi í eldinum nýtur ekki lengur við kemur veruleg slagsíða á jafnvægi karlleika og kvenleika í Helgu. Til að ná jafnvægi á nýjan leik, sem er brýnt fyrir velferð Helgu, verður hún sjálf að nálgast og ná yfirráðum yfir hinu karlmannlega tákni, eldinum. Það er enn fremur ljóst að til þess að Helga geti haldið áfram að þroskast eðlilega er dauði eða táknrænn dauði föðurins henni nauðsynlegur. Eldinn getur hún ekki sótt neitt annað en til risanna sem standa fyrir hennar eigin animus. Því dulvitaðri og fjar- lægari sem animus er því ógnvænlegri verður hann. Risi er hálfmennsk vera sem býr yfir ógnarkrafti hrárra og ótaminna tilfinninga. Von Franz bendir á að láti manneskja slíkar tilfinningar ná valdi á sér verði hún villt sem berserkur og hagi sér heimskulega, en heimskan er eitt af einkennum risans (1989:116-117). Ráðið til að ná sjálfur valdi á þessum kraftmiklu og ótömdu tilfinningum er að takast á við þær eða tákngerving þeirra, risann. Risarnir og eldurinn í ævintýrinu eru óaðskiljanleg öfl og tákna í raun hið sama, animus Helgu sem hún þarf að höndla á leið sinni til þroska. Eldurinn er voldug höfuðskepna sem getur bæði unnið gagn og tjón. í hinni fornu gullgerðarlist táknar eldurinn oft það að taka sjálfur þátt í verkinu og er borinn saman við þá ástríðu sem fólgin er í hinum 74
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.