Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Page 48
Eyben setur fram skýrar vinnureglur um notkun kerfanna. Hann segir að tímabil
það sem tjónþoli á rétt á að fá bætt markist af upphafstímapunkti (begynd-
elsestidspunkt) þegar tjón varð og af lokatímapunkti (sluttidspunkt), sem er sá
fyrri af eftirtöldum tveimur tímapunktum:
1. Þegar tjónþoli hefur vinnu að nýju í sama mæli og áður.
2. Þegar heilsufarsástand tjónþola telst vera stöðugt og ekki líklegt að ástand
batni frekar að mati lækna.42
Hér á eftir eru þessi viðmið skýrð nánar, svo og hlutverk lækna í úrvinnslu
þeirra og mati.
4.1.1 Vinnuviðmið
Eftir að tjónþoli hefur hafið vinnu að verulegu leyti í sama mæli og áður falla
niður bætur fyrir atvinnutjón.43 Þá gildir einu hvort heilbrigðisástand tjónþola
er orðið stöðugt eður ei. Þótt tjónþoli fari að vinna án þess að vera fullfrískur á
hann ekki rétt til að fá greitt atvinnutjón, en gæti átt rétt til þjáningabóta. Ef
tjónþoli gerir stutta tilraun til að vinna en reynist ekki geta það missir hann ekki
rétt til áframhaldandi bóta vegna atvinnutjóns.44
4.1.2 Bataviðmið
Ef tjónþoli hefur ekki vinnu að nýju að fullu eða að hluta á hann rétt á að fá
atvinnutjón bætt þar til heilbrigðisástand hans er orðið stöðugt, þ.e. að ekki sé
að vænta frekari bata að mati læknis. Eftir þetta á hann ekki frekari rétt til
tímabundins atvinnutjóns, en við taka bætur fyrir varanlegra örorku.
Almennt má segja að á meðan tjónþoli er til rannsókna, eftirlits og meðferðar
sem leiðir til augljóss bata telst hann á batavegi. Jafnskjótt og meðferð skilar
ekki greinilegum bata eða líðan er breytileg án þess í heild að skána getur
tjónþoli ekki lengur talist á batavegi og miðast stöðugleikatímapunktur við
þann tíma.
í þeim tilvikum þar sem ákvarða þarf lok atvinnutjóns með stöðugleika-
tímapunkti hafa í Danmörku skapast eftirfarandi viðmiðanir, oft samkvæmt
dómsniðurstöðum:
42 Eyben, Bo von, Nbrgaard, Jdrgen, Vagner, Hans Henrik: Lærebog i erstatningsret. Kaup-
mannahöfn 1995, bls. 232.
Kruse, Anders Vinding og Mpller, Jens: Erstatningsansvarsloven med kommentarer. Kaup-
mannahöfn 1993, bls. 67.
43 Frumvarp til skaðabótalaga, lagt fyrir 116. löggjafarþing 1992, bls. 27.
44 Kruse, Anders Vinding og Mpller, Jens: Erstatningsansvarsloven med kommentarer.
Kaupmannahöfn 1993, bls. 67-68.
„U 1975.319 0 (skadelidte forspgte at genoptage sit arbejde i fem dage i november 1971.
Erstatning blev givet frem til maj 1972).
U 1979.964 H (skadelidte forspgte at genoptage sit arbejde i 14 dage. Erstatning blev givet frem til
stationær tilstand et Sr senere intraf). Fár skadelidte sáledes »tilbagefald«, og er helbredstilstanden
ikke stationær, kan der igen kræves erstatning for tabt arbejsfortjenste".
272