Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Page 85

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Page 85
skuldabréfum eða skuldaviðurkenningum. Dráttarvextir vegna vanskila teljast ekki vextir samkvæmt 11. grein. 3.3.4.8 12. grein. Þóknun Samkvæmt 3. mgr. 12. greinar merkir hugtakið „þóknun“ hvers konar greiðslu sem tekið er við sem endurgjaldi fyrir afnot eða rétt til að hagnýta hvers konar höfundarétt á sviði bókmennta, lista eða vísinda (þar með taldar kvikmyndir og mynd- og hljóðsegulbönd fyrir hljóðvarps- og sjónvarpssendingar), einkaleyfi, vörumerki, mynstur eða líkön, teikningu, leynilega formúlu eða framleiðslu- aðferð, eða fyrir upplýsingar um reynslu á sviði iðnaðar, viðskipta eða vísinda. Þóknanir skulu einungis skattlagðar í því ríki sem móttakandi þeirra er heimilisfastur (1. mgr.), ef ákvæði 2. mgr. um skattlagningu þóknana sem tekna í tengslum við fasta atvinnustöð eða fasta stöð í upprunaríkinu á ekki við. Akvæði 12. greinar eru í samræmi við samsvarandi ákvæði í OECD-fyrir- myndinni og gamla samninginn frá 1989. Heimildina til skattlagningar þóknana til erlendis búsettra aðila er að finna í 6. tl. 3. gr. tskl., sbr. 3. tl. 71. gr. s.l. 3.3.4.9 13. grein. Söluhagnaður af eignum I 13. grein er fjallað um söluhagnað af eignum. Almennu regluna um skattlagningu söluhagnaðar er að finna í 6. mgr. þar sem segir að heimilis- festarríki gjaldanda skuli eitt eiga réttinn til skattlagningar söluhagnaðar. í 1.-5. mgr. og í 7. mgr. er að finna undantekningar frá þessari aðalreglu, þar sem upprunalandinu er fenginn skattlagningarréttur.29 A sama hátt og samnings- fyrirmynd OECD byggir 13. greinin á þeirri meginreglu að söluhagnað hlutar eigi að skattleggja í því ríki sem hefur rétt til að leggja tekjuskatt á tekjumar af hlutnum og hafði rétt til að leggja eignarskatt á hlutinn áður en hann var seldur. Samkvæmt 1. mgr. má skattleggja hagnað við afhendingu á fasteign í því ríki sem fasteignin er staðsett. Sama gildir skv. 2. mgr. um hagnað við afhendingu á hlutabréfi eða hlutareign í félagi sem hefur það sem aðaltilgang að eiga fasteign. Ákvæðinu hefur verið breytt frá gamla samningnum og gildir samkvæmt nýja samningnum eingöngu þegar verðmæti eignar félagsins (áður en skuldir eru dregnar frá) eru a.m.k. að 75 hundraðshlutum beint eða óbeint fólgin í fasteign sem staðsett er í ríkinu þar sem félagið er heimilisfast. 2. mgr. er einnig breytt að því leyti að það er ekki sett sem skilyrði að hlutabréfið eða hlutareignin gefi eiganda þess rétt til þess að nota þá eign sem félagið á. Hagnað við afhendingu lausafjár sem er hluti rekstrareigna fastrar atvinnu- stöðvar eða fastrar stöðvar má skv. 3. mgr. skattleggja í því ríki sem fasta atvinnustöðin eða fasta stöðin er staðsett. Sama gildir um hagnað af afhendingu á slíkri fastri atvinnustöð (einni sér eða ásamt fyrirtækinu í heild) eða slíkri fastri stöð. Samkvæmt 4. mgr. skattleggst söluhagnaður aðila heimilisfasts í samnings- 29 Sjá nánar Det nordiske skatteavtalet med kommentarer andra upplag 1990, bls. 153. 309
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.