Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Side 60

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Side 60
5.3 Geislavirk efni 5.4 Þungmálmar 5.5 Olíuefni 5.6 Næringarefni 5.7 Setflutningar og mengun sets 5.8 Sorp 5.9 Meðhöndlun og eftirlit með skaðlegum efnum 6. LOKAORÐ 1. INNGANGUR A síðustu áratugum hefur komið í ljós að höf heimsins eru víða alvarlega menguð. Vaxandi mengun ógnar nú víða lífríki sjávar og framleiðni þess. Þessi tíðindi ber að taka alvarlega vegna þess lykilhlutverks sem lífríki sjávar gegnir í hringrás alls lífs á jörðunni. Á alþjóðavettvangi hefur verið reynt að taka á þessu umhverfisvandamáli en með takmörkuðum árangri. Mengun sjávar kemur að mestu leyti frá landi.1 Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur þjóðum heims ekki tekist að koma viðhlítandi lögum yfir þessa tegund mengunar. Lítið fer fyrir venjubundnum alþjóðarétti á þessu sviði og alþjóða- samningar hafa ekki skilað ásættanlegum árangri. Á síðustu tveimur áratugum hefur verið reynt að nálgast þetta vandamál í auknum mæli með svæðisbundn- um samningum en án fullnægjandi árangurs. Árið 1995 var á vegum Sam- einuðu þjóðanna samþykkt hnattræn framkvæmdaáætlun um að draga úr meng- un sjávar frá landi sem vonir eru bundnar við að muni bera áþreifanlegri ár- angur en fyrri tilraunir á þessu sviði. I sjónum umhverfis ísland mætast ólíkir haf- og loftstraumar sem gera það að verkum að mengandi efni geta borist til landsins úr ýmsum áttum. Fiskurinn í sjónum umhverfis landið myndar undirstöðu efnahagslífs okkar. Það er því afar mikilvægt fyrir okkur íslendinga að fylgjast með mengun í sjónum um- hverfis landið; gera okkur grein fyrir hvaðan hún kemur og gera okkar besta til að ná tökum á henni svo að hún valdi ekki óbætanlegu tjóni. íslensk stjómvöld gerðu sér snemma grein fyrir mikilvægi þessa máls og hafa tekið mjög virkan þátt í alþjóðasamvinnu á þessu sviði. Það er tilgangur þessarar greinar að fjalla um mengun sjávar frá landi og kanna hvernig til hefur tekist við að ná stjóm á henni. Fjallað verður um hvernig alþjóðaréttur hefur þróast á þessu sviði; hvernig mengun sjávar hefur haft áhrif á þróun alþjóðlegs hafréttar og hvernig þjóðir heirns hafa fetað sig áfram með 1 Þessi tegund mengunar hefur verið nefnd á ensku „marine pollution from land-based activities". Hugtakið „mengun frá landstöðvum" hefur mikið verið notað í íslensku fyrir mengun frá landi. Það hefur þó borið við að það hugtak hefur verið túlkað samkvæmt orðanna hljóðan og því þrengra en merkingu þess er ætlað að vera. „Mengun frá landi" er því að mestu leyti notað í grein þessari um þessa tegund mengunar. 226

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.