Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Page 86

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Page 86
9. Dr. Ármann Snævarr prófessor: Lokaorð 10. Heimasíða lagadeildar formlega tekin í notkun 11. Fundarlok 5. ERLEND SAMSKIPTI 5.1 Kennara- og stúdcntaskipti Erlend samskipti lagadeildar hafa aukist mjög hin síðari ár, ekki síst með til- komu svokallaðra laganeta í Evrópu, fyrst og fremst Nordplus og Erasmus. Nordplus er styrktarkerfi fyrir nemendur og kennara sem ætlað er að auð- velda nemenda- og kennaraskipti milli Norðurlandanna. Evrópunetið nefnist Erasmus og er eins og Nordplus ætlað að auðvelda nemenda- og kennaraskipti milli landa. Laganet þess kallast ELPIS (European Legal Practice Integrated Studies). Stöðugt færist í vöxt að stúdentar við lagadeild nýti sér þessa möguleika og stundi hluta kjömáms síns við erlenda lagaháskóla samkvæmt heimild í há- skólareglugerð. Þannig lögðu 15 íslenskir laganemar stund á nám við háskóla í Evrópu vorið 1999, 20 laganemar haustið 1999 og 9 laganemar vorið 2000. Sérstakir samningar um stúdentaskipti, fyrir utan Nordplus og Erasmus, eru á milli lagadeildar og Ohio Northern University, Washington University og Renmin-háskóla í Kína. 5.2 Aðild að öðru samstaríl Af öðmm reglulegum samskiptum lagadeildar við lagaskóla í Evrópu má nefna þátttöku í starfi ELA, European Association for Education and Policy, og ELFA, European Law Faculties Association, en ekki verður fjallað nánar um samstarf þetta hér. 5.3 Kennsla fyrir erlenda laganema Undanfarin ár hefur verið boðið upp á fjögur námskeið í lögfræði á ensku við lagadeild fyrir erlenda stúdenta. Námskeið þessi svara til eins misseris náms og eru metin til 15 eininga alls og eru kennd á haustmisseri. Þau eru: „Comparative Criminal Law“ í umsjón Jónatans Þórmundssonar prófessors, „European Law“ í umsjón Stefáns Más Stefánssonar prófessors, „Legal History“ í umsjón Sigurðar Líndal prófessors og „The Law of the Sea“ í umsjón dr. Gunnars G. Schram prófessors. Á haustmisseri 1999 voru 9 erlendir stúdentar í námi þessu við lagadeild. 5.4 Erlendir gestir og fyrirlesarar Á árunum 1999 og 2000 var haldið áfram þeirri stefnu að kalla til erlenda sérfræðinga í heimsóknir og til fyrirlestrahalds á vegum lagadeildar og voru þeir helstir: Vagn Greve, prófessor í refsirétti og forseti lagadeildar Kaupmannahafnarhá- 252

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.