Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Side 40
Þegar dómstóll Evrópubandalaganna fór að kveða æ fastar að orði í dómum
sínum um að aðildarríkin hefðu framselt hluta af ríkisvaldi sínu, gefið eftir af
fullveldi sínu, fór að bera æ meira á nýju hugtaki til að lýsa eðli Evrópubanda-
laganna, hugtakinu yfirþjóðlegu valdi eða supranationality. Peter Hay gerði á
þessum tíma nákvæmustu greiningu sem ég hef fundið á því hver séu einkenni
yfirþjóðlegs valds og jafnframt hvemig hinar mismunandi réttarhefðir Evrópu-
ríkja tækjust á við að lýsa yfirþjóðlegu valdi.42 Hann komst að mikilvægri grund-
vallarniðurstöðu sem var sú að yfirþjóðlegt vald og framsal fullveldis væru
samhverf hugtök. Þannig að yfirþjóðlegt vald vœri stjórnmálafrœðilega það
sem framsal fullveldis er lögfræðilega.
Hugtakið yfirþjóðlegt vald var nýtt hugtak um nýjan veruleika. Það kemur
fyrir í 9. gr. samningsins um Kola- og stálbandalagið en gat ekki talist lög-
fræðilegt hugtak því að það lýsti hvorki lagalegu valdi né réttindum heldur
frekar pólitískum eiginleika eða pólitísku stefnumiði.
Peter Hay gat greint árið 1966 að alls væri sex einkenni að finna í fræð-
unum, en fræðimenn röðuðu þeim saman á mismunandi hátt og legðu ólíkar
áherslur. Það var með öðrum orðum ekki sammæli um tæmandi talningu þessara
einkenna, hvort eitthvert þeirra teldist nægilegt skilyrði fyrir yfirþjóðlegu valdi
eða einhver önnur væru nauðsynleg skilyrði. Einkennin sex voru:
1. Sjálfstæði bandalagsins og stofnana þess
2. Meirihlutaræði í stofnunum þess
3. Bein réttaráhrif lagasetningar þess gagnvart lögpersónum og einstakl-
ingum
4. Framsal fullveldis frá aðildarríkjum til þess
5. Umfang slíks flutnings
6. Þing og dómstóll
Enn er algengt að yfirþjóðlegu valdi sé lýst í ritum um Evrópurétt með því
að telja upp einkenni þess, t.d. undantekningarlaust í íslenskum ritum.43 Slíkar
upptalningar eru enn mismunandi að því leyti hvað er tiltekið og hvar áherslan
liggur. Það liggur þannig ekki enn fyrir ríkjandi skilgreining af þessu tagi eða
sammæli um hvenær einkennin séu tæmandi talin. I íslenskum ritum um
Evrópurétt hafa einkum verið tilgreind þessi þrjú einkenni: sjálfstæði stofnana,
meirihlutaræði um ákvarðanir og bein réttaráhrif.
42 Peter Hay: Federalism and Supranational Organizations. London 1966, bls. 76-77. Hay bar
saman að heita má öll skrif sem þá bar hæst og tilgreinir fjóra andstæðinga þess að nota hugtakið
yfirþjóðlegt vald en 24 fræðimenn sem noti það.
43 Sbr. t.d. Gunnar G. Schram: „Framsal ríkisvalds til EB“. Ármannsbók. Rvík. 1989, bls. 222;
Stefán Már Stefánsson: Evrópuréttur. Rvík. 1991, bls. 23-24, sbr. nokkuð breytt í Evrópusam-
bandið og Evrópska efnahagssvæðið. Rvík. 2000, bls. 63-64. Einkenni yfirþjóðlegs valds eru til-
greind á annan hátt hjá Davíð Pór Björgvinssyni: „Tengsl EES-réttar og landsréttar". Úlfljótur. 2.
tbl. 1995, bls. 127-128. Hann nefnir bein lagaáhrif, bein réttaráhrif og forgangsáhrif reglna Evrópu-
sambandsins.
34