Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Page 78

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Page 78
sem að margra mati var eins konar tákngervingur hinna framsæknu og róttæku þjóðfélagsafla, en herkeisarinn mikli hafði sjálfur tekið beinan þátt í samningu bókarinnar auk þess sem frá honum hafði streymt það afl sem þurfti til að sam- eina og endurskapa franskan rétt með þessum hætti í anda frelsis- og mann- réttindayfirlýsingar þjóðfundarins þar í landi sem enn bar hátt í vitund fram- sækinna menntamanna og stjórnmálamanna víða um heim. Með því að sækja fyrirmyndir til frönsku lögbókarinnar hugðust menn með vissum hætti geta samsamað strauma og stefnur heima fyrir þeim glæsta anda frelsis og framfara sem einkenndi franska löggjöf og lögvísi fram eftir 19. öldinni. Mjög er þó misjafnt hve lögbækur Suður-Ameríkuríkjanna eru „litaðar“ af beinum áhrifum eða fyrirmyndum frá Code civil. Nokkra sérstöðu hefur t.d. einkaréttarlögbók Bolivíumanna frá 1830 (hin fyrsta borgaralögbók í álfunni), sent var því sem næst orðrétt þýðing frönsku lögbókarinnar, en svipað má reyndar segja um lögbækur nokkurra annarra ríkja Rómönsku Ameríku frá svip- uðum tíma, einkum Haiti (1825) og Dómintkanska lýðveldisins (1845/1884). En jafnframt komu aðrar evrópskar lögbækur (eða þá frumdrög að lög- bókum) til greina sem fyrirmyndir, allt eftir atvikum, og voru notaðar í mis- miklum mæli í því augnamiði, auk þess sem rit ýmissa evrópskra heimspek- inga, þjóðfélagsfræðinga og lögvísindamanna, sem gustur stóð af um þessar mundir, hlutu einnig að hafa mikil áhrif á hugmyndir þeirra manna er einkum unnu að samningu hinna nýju lögbóka í Suður-Ameríku. Úr þessum „suðupotti“ hugmynda og fyrirmynda rann það efni sem myndaði hinar nýju lögbækur í stórum dráttum, þ.e. þær lögbækumar er helst má telja til eiginlegrar nýsmíði, því að hinu má heldur ekki gleyma að sumar þjóðir í þessum heimshluta völdu þann einfalda kost að lögleiða hreint og beint nýjar eða nýlegar lögbækur tiltekinna grannríkja, oft án teljandi breytinga. Við samningu borgaralögbóka, sem fyrst komu til sögunnar á 20. öld eða hafa verið endursamdar á þeirri öld og nú í upphafi hinnar 21., hefur í allmikl- um mæli verið horfið frá fyrirmyndum hinnar frönsku lögbókar og þær fremur sóttar til lögbóka Þjóðverja, Itala og Svisslendinga, auk þess sem dálítilla áhrifa frá „common law“-rétti hefur gætt á mjög afmörkuðum sviðum einkamála- réttar, sbr. t.d. ýmis dæmi þess að tekin hafi verið upp ákvæði um „trust“ að ensk/amerískri fyrirmynd. Það eru einmitt þessar miklu og vönduðu borgaralögbækur sem alla tíð síðan hafa verið meginheimildir einkamálaréttar nær allra Suður-Ameríkuþjóða - sem og annarra landa Róntönsku Ameríku. Að þessu leyti sver einka- málaréttur þessara þjóða sig ótvírætt (með smáum frávikum) í ætt við „civil law“-kerfið, sem rakið verður til alkunnrar réttarþróunar í ríkjum á meginlandi Evrópu, en óþarfi ætti að vera að lýsa hér megineinkennum þeirrar réttar- fjölskyldu. Þá verður heldur ekki séð ástæða til að fjalla nánar, til aðgreiningar, um höfuðeinkenni „common law“-réttarfjölskyldunnar því að réttarreglur úr þeirri átt höfðu svo takmörkuð áhrif í Suður-Ameríku ef undan eru skilin viss svið opinbers réttar, sbr. það sem fyrr sagði urn það efni. 72
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.